Matsveppagæðingurinn Jón Svavar Jósefsson með furusvepp – þarna á ferð í Kjósinni ásamt eiginkonu sinni og ljósmyndara myndarinnar,  Halldóru Björk Friðjónsdóttur.
Matsveppagæðingurinn Jón Svavar Jósefsson með furusvepp – þarna á ferð í Kjósinni ásamt eiginkonu sinni og ljósmyndara myndarinnar, Halldóru Björk Friðjónsdóttur.
Mynd / Halldóra Björk Friðjónsdóttir
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum, enda virðist sem áhuginn á villtum sveppum hafi margfaldast á undanförnum árum.

Sem dæmi má nefna að stærsti samfélagsmiðlahópur landsins um efnið, Funga Íslands – sveppir ætir eður ei, telur nú yfir 30.000 meðlimi sem deila myndum, staðsetningum og ráðum daglega. Sérfræðingar segja breytta menningu, aukna skógrækt og ríka áherslu á sjálfbærni og staðbundinn mat vera helstu drifkraftana á bak við þessa miklu sveppabylgju.

Ríkuleg náttúra og breyttar hefðir

Hér á landi eru nú þekktar á milli 2–3000 tegundir af sveppum, auk rúmlega 700 tegunda fléttna á Íslandi, en fléttur eru sveppir sem geta ljóstillífað fyrir tilstilli blágrænna baktería og/eða þörunga sem lifa inni í vefjum sveppsins.

Sveppatínsla hérlendis hefur reyndar farið fram frá því að elstu menn muna og þótti hér áður fyrr einstaklega gott að rista sér brauð og setja nýja smjörsteikta sveppi ofan á. Í dag eru sveppir til viðbótar notaðir í ýmislegt á borð við paté, þeir eru pæklaðir og einnig nýttir í lifrarpylsu grænkera.

Þegar líða tekur að hausti fara margir í sveppamó eftir langan og strangan rigningardag. Þá hafa erlendir ríkisborgarar flutt með sér ríka sveppatínslumenningu og niðurstaðan orðin sú að hin ýmsu skóglendi nær og fjær fyllast af fólki með hnífa og körfur um leið og haustrigningarnar skella á.

Eitthvað þarf þó að hafa bak við eyrað að fara þarf gætilega að náttúrunni, tína ekki meira en til eigin neyslu og huga að því að leyfa litlum sveppum að ná fullum vexti. Einnig þarf að hafa í huga að stundum geta sveppir leynt á sér og óþroskaðir sveppir þurfa stundum tíma til að vaxa og sýna þá þau einkenni sem nýtast hvað best við greiningu.

Sést hefur til sveppaofstækismanna rífa upp mosa og skilja eftir sig moldarflögð í æsingnum að ná sem mestu þegar heldur á að bera virðingu fyrir landinu okkar allra. Þetta mætti fólk láta berast. Hrós fá þeir sjóuðu leikmenn sem fara varlega að og hreinsa ekki svörðinn. Hins vegar má endilega hreinsa rusl sem finnst á jörðinni og muna að taka allt með okkur sem við komum með, umbúðir, sígarettustubba og þar fram eftir götunum.

Helstu matsveppir í íslenskri náttúru

Fyrir þá sem vilja prófa sig áfram er mikilvægt að þekkja muninn á helstu tegundunum. Flestir íslenskir pípusveppir (sveppir með svampkenndu lagi undir hatti) eru skaðlausir og bragðgóðir. Helstu matsveppirnir sem fólk leitar að eru:

Lerkisveppur (Suillus grevillei): Vinsælasti matsveppurinn á Íslandi. Hann vex eingöngu í samlífi við lerkitré og furu og þekkist á gulum eða brúnum, slímugum hatti.

Kúalubbi (Leccinum scabrum): Mjög algengur sveppur sem finnst helst í birkiskógum. Mildur og góður matsveppur.

Furusveppur (Suillus luteus): Vex í furuskógum. Hann er einstaklega bragðgóður en gott er að fletta slímugri húðinni af hattinum fyrir matreiðslu.

Kóngssveppur (Boletus edulis): Konungur matsveppanna. 

Hann er frekar sjaldgæfur en getur náð gífurlegri stærð. Nýlega fréttist til dæmis af tæplega þriggja kílóa kóngssvepp sem fannst í Heiðmörk. 

Blint traust á eigin kunnáttu óæskilegt

Þrátt fyrir eldmóð þeirra sem halda til tínslu vara sveppafræðingar við blindu trausti á eigin kunnáttu þegar kemur að sveppunum.

Berserkjasveppur (Amanita muscaria).

Náttúrufræðistofnun Íslands og sérfræðingar á borð við Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur, sem hefur Ph.D. í sveppafræðum, hafa ítrekað bent á að fólk megi alls ekki borða sveppi sem það þekkir ekki til fullnustu.

Á Íslandi finnast nokkrar varasamar og eitraðar tegundir. Hinn kunnuglegi berserkjasveppur (Amanita muscaria), með sinn rauða hatt og hvítu díla, inniheldur taugaeitur sem veldur alvarlegum einkennum.

Viðarkveif (Galerina marginata).

Hættulegri er þó hin smáa viðarkveif (Galerina marginata), sem inniheldur banvæn eiturefni. Hún hefur fundist í íslenskum skógum og getur auðveldlega leynst dulin í gróðrinum.

Auk þess inniheldur fjöldi minni sveppa efnið múskarín, sem getur valdið hjartsláttartruflunum og alvarlegum magaóþægindum, sérstaklega hjá fólki með undirliggjandi sjúkdóma.

Góð ráð fyrir sveppaferðina

Ef halda á í sveppamó er best að undirbúa sig vel. Mælt er með því að nota fléttaðar körfur eða pappakassa frekar en plastpoka, þar sem sveppirna „svitna“ og skemmast fljótt í plasti. Þegar sveppur er tíndur á að taka neðst um stafinn, snúa honum varlega og lyfta. Láta þá sveppi vera sem litlir eru, en leyfa þeim að þroskast í friði.

Heima skal hreinsa þá strax, skera í burtu maðksmitaða hluta og annaðhvort matreiða þá samdægurs, frysta eða þurrka. Almenna reglan er einföld: Ef þú ert í minnsta vafa, skildu sveppinn eftir í skóginum.

Neytandinn

Undir þetta tekur óperusöngvarinn og smiðurinn Jón Svavar Jósefsson, sem nýtur þess að fara í sveppamó með konu sinni, Halldóru Björk.

Hann minnist rómantískrar ferðar í Kjósina þar sem þau fundu stærsta furusvepp sem þau höfðu augum litið. Sveppurinn var matreiddur af mikilli list með miklu af svörtum pipar... og sammælast þau hjón um að skemmtilegri mat hafi þau sjaldan bragðað. 

Skylt efni: Sveppir | sveppatínsla

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...