Nýr landnemi úr svepparíkinu
Sveppur af ættkvíslinni Rhizopogon fannst nýlega á Íslandi en hann hefur ekki verið skráður áður hér á landi.
Sveppur af ættkvíslinni Rhizopogon fannst nýlega á Íslandi en hann hefur ekki verið skráður áður hér á landi.
Nú er sá tími að hægt er að hefja tínslu sveppa og berja hérlendis. Berjasælt hefur verið helst á Austur- og Norðausturlandi, en fregnir af sveppum berast hins vegar víðs vegar af landinu og vart seinna vænna en grípa tækifærið.
Ein mest ljóslifandi æskuminning mín er þegar fjölskylda mín ákvað dag einn að halda út í skóginn í nágrenni við gamla bóndabæinn okkar í Bretagne að leita sveppa.
Sveppir gegna lykilhlutverki í lífríkinu með því að umbreyta plöntu- og dýraleifum í einföld efnasambönd, sem plöntur og ýmis smádýr geta tekið upp, og viðhalda þannig hringrás næringarefnanna. Lífið í núverandi mynd væri óhugsandi án sveppa.
Nú líður að lokum sveppatínslutímabilsins. Veðurfar var misgott eftir landshlutum en hvernig skyldi sveppaáhugafólki hafa reitt af við söfnun á þessum vetrarforða? Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur segir að svo virðist sem sumarið hafi verið fremur dræmt hvað sprettu ýmissa sveppa varðar.
Trufflur, eða jarðkeppir, eru sveppir sem vaxa neðanjarðar og líkjast helst skorpnaðri kartöflumóður að hausti. Lyktin af þeim er blanda af nýunnum jarðvegi í haustrigningu, iðandi ánamöðkum og minningunni um svita löngu liðins ástarlífs. Sælkeratrufflur seljast fyrir gríðarlega hátt verð.
Kóngssveppur finnst í skógum og kjarri um allt land. Þar sem kóngssveppur vex á annað borð er yfirleitt mikið af honum. Stafurinn stuttur, en getur orði 20 sentímetra langur og gildastur neðst. Hatturinn allt að 25 sentímetrar í þvermál. Ljós- yfir í dökkbrúnn að lit og með matta og þurra áferð þurr, en glansandi þegar hann er blautur. Holdið er hv...
Fáum sögum fer af neyslu sveppa hér á landi fyrr á öldum. Áhugi á neyslu þeirra er því ný af nálinni en áhuginn hefur aukist hratt.
Sveppir eru ólíkir plöntum, meðal annars að því leyti að þeir hafa ekki blaðgrænu og geta því ekki ljóstillífað og unnið lífræn efni úr ólífrænum.