Þurrkuð fiskeldismykja hjá Laxey fiskeldi í Vestmannaeyjum.
Þurrkuð fiskeldismykja hjá Laxey fiskeldi í Vestmannaeyjum.
Mynd / ál
Fréttir 23. nóvember 2026

Styrkur til nýtingar þurrkaðrar fiskeldismykju sem áburðar

Höfundur: Þröstur Helgason

Verkefnið Þurrkuð fiskeldismykja sem áburður hefur hlotið 15 milljóna króna styrk úr Matvælasjóði. Að verkefninu standa Laxey, Samherji Fiskeldi, First Water, Matís, Land og skógur og Bændasamtök Íslands. Markmið verkefnisins er að rannsaka afurð sem verður til við þurrkun fiskeldismykju og kanna möguleika hennar til nýtingar sem áburðar.

Verkefnið snýst um afurð sem framleidd er með Eddy þurrkara, nýrri íslenskri þurrkunartækni sem fyrirtækið Héðinn hefur þróað. Pilotútgáfa þurrkarans hefur verið sett upp hjá landeldisfyrirtækinu Laxey í Vestmannaeyjum og þar er unnið að prófunum á tækninni og framleiðslu þurrkaðrar fiskeldismykju. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bændasamtökum Íslands.

Eddy þurrkarinn notar spanhitun sem gerir kleift að ná meira en 98% orkunýtni og stýra hitastigi hvers disks og svæðis af nákvæmni. Með því að sleppa hefðbundnu gufukerfi einfaldast rekstur og viðhald og unnt er að stýra þurrkunarferlinu af mikilli nákvæmni. Tæknin þarf jafnframt minna gólfpláss en hefðbundnar lausnir og er hönnuð til að stuðla að jöfnum afurðagæðum og skilvirkri orkunýtingu, segir í tilkynningunni.

Samstarf við bændur í Landeyjum

Verkefnið mun rannsaka eiginleika afurðarinnar, greina breytileika hráefnis og skoða hvernig afurðin getur nýst í landbúnaði. Hluti verkefnisins felur í sér samstarf við bændur í Landeyjum, þar sem kannað verður hvort unnt sé að dreifa afurðinni með þeim tækjabúnaði sem þegar er til staðar á bæjum. Ef hægt verður að nýta afurðina án fjárfestingar í sérhæfðum dreifingarbúnaði gæti það auðveldað nýtingu hennar verulega.

Samkvæmt framleiðsluspám fjögurra stærstu landeldisfyrir- tækjanna er áætlað að um 6.290 tonn af fiskeldismykju falli til árið 2026, miðað við 30% þurrefni. Ef núverandi áætlanir um uppbyggingu landeldis ganga eftir gæti magnið aukist í um 70.000 tonn árið 2031. Því er mikilvægt að þróa lausnir og afla þekkingar sem getur stutt við uppbyggingu framtíðarfarvega fyrir þennan vaxandi hliðarstraum.

Þróun regluverks mikilvæg

Í tilkynningunni er lögð áhersla á að regluverk um nýtingu fiskeldismykju til áburðarframleiðslu þróist í takti við nýja nýtingarmöguleika. „Drög að nýrri áburðarreglugerð, sem nýlega voru lögð fram til umsagnar, fela í sér afar jákvæð skref varðandi nýtingu lífrænna hliðarstrauma. Núgildandi regluverk heimilar aðeins takmarkaða nýtingu fiskeldismykju og því er mikilvægt að unnið verði hratt úr þeim umsögnum sem bárust og að ný reglugerð taki gildi sem fyrst. Skýr og nútímaleg umgjörð er mikilvæg til að styðja við þá nýsköpun, þekkingaruppbyggingu og tækniþróun sem þegar á sér stað.“

„Þróun farvega fyrir fiskeldismykju er ein stærsta áskorunin sem landeldisfyrirtækin standa frammi fyrir í dag. Fyrirtækin hafa þegar unnið mikla vinnu og fjárfest í rannsóknum, þróunarverkefnum og nýrri tækni samhliða vexti greinarinnar. Ég hef tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi þar sem þessi málefni eru rædd og þar finn ég skýrt fyrir áhuga á þeirri vinnu sem nú fer fram á Íslandi. Verkefnið er gott dæmi um það frumkvæði og samstarf sem nú á sér stað hér á landi og mun skila mikilvægri þekkingu sem styður við þróun framtíðarfarvega fyrir fiskeldismykju,“ segir Gyða Pétursdóttir, verkefnastjóri hjá Bændasamtökum Íslands.

Niðurstöður verkefnisins munu nýtast atvinnugreininni, rannsóknaaðilum og stjórnvöldum við áframhaldandi þróun lausna fyrir fiskeldismykju og aukna nýtingu innlendra hliðarstrauma.

Skylt efni: matvælasjóður

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...