Stuðningur við bændur hæstur á Íslandi
Fréttir 23. nóvember 2026

Stuðningur við bændur hæstur á Íslandi

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Landbúnaðargeirinn í heild sinni stendur frammi fyrir tíðari áföllum sem eru alþjóðleg og tengd og hafa síaukin efnahagsleg áhrif. Samhliða hefur stuðningur ríkja til landbúnaðar aukist um nær 15% á undanförnum tveimur árum.

OECD segir myndina því bjagaða. Fyrirsjáanleika vantar umfram endurteknar skammtímaaðgerðir. Stuðningur við bændur á Íslandi er sá hæsti sé miðað við þau 56 lönd sem árleg skýrsla um landbúnaðarstefnu og -styrki OECD nær til. Verndandi aðgerðir, svo sem tollar, nemi 53% af heildarstuðningi.

Óbein skattlagning

Áætlaður stuðningur við framleiðendur á Íslandi svaraði til 52% af heildartekjum land- búnaðarins, sem er meira en þrefalt hærra en meðaltal OECD á árunum 2023-2025.

Ýmsar aðgerðir sem hækka verð á matvælum innanlands, einkum tollar sem halda verði háu í samanburði við heimsmarkaðsverð, eru taldar vega þungt og mat OECD að þær nemi 53% af heildarstuðningi við framleiðendur.

Þessar aðgerðir leiða til þess að neytendur bera hluta af kostnaðinum við stuðninginn, sem samkvæmt skýrslunni getur talist til tilfærslu fjármuna frá neytendum til bænda, eða óbeinnar skattlagningar.

Stuðningur Evrópusambandsins við framleiðendur nam 17,4% af heildartekjum landbúnaðar á árunum 2023-2025 og er það yfir meðaltali OECD. Þar hefur dregið úr mikilvægi ráðstafana vegna viðskipta- og vöruverndar, svo sem tollkvóta.

Draga úr aðgerðum sem skekkja

Nær helmingur alls stuðnings til landbúnaðar þykir líklegur til að raska framleiðslu og viðskiptum, með því að breyta markaðsverði, niðurgreiða aðföng og tengja greiðslur framleiðslumagni.

Í skýrslunni er skoðað hvernig ríkisstjórnir aðildarríkjanna bregðast við þróuninni sem á rætur á alþjóðasviðinu og bent er á tækifæri til aukinnar framsýni og skilvirkni í landbúnaðarstuðning, sem stuðlað geti að aukinni seiglu, framleiðni og sjálfbærni.

Bent er á að stjórnvöld geti bætt nýtingu opinberra útgjalda með markvissum leiðum til áhættustýringar og notað hvatakerfi, frekar en aðferðir sem hafa neikvæð áhrif á eða skekkja framleiðslu, verðlag og viðskipti.

Þörf á langtímasýn og fjárfestingu

Stuðningur aðildarríkja jókst um nær 15% á milli áranna 2023 og 2025. Með aukningunni er snúið við langvinnum samdrætti í fjármagni til landbúnaðarins miðað við framleiðni. Aukning í fjárframlögum ríkja kemur á sama tíma og alþjóðleg áföll ríða yfir og valda efnahagslegum áhrifum. Í skýrslunni segir aukna þörf á fyrirsjáanleika og langtímasýn, en stjórnvöld bregðist oftar við og grípi til skammtímaaðgerða til að bregðast við einu áfallinu á fætur öðru.

Fjárfesting í nýsköpun og viðnámsþrótti í landbúnaði heldur ekki í við þarfir greinarinnar og hægt hefur á framleiðni. Fjárfestingar í þekkingu og nýsköpun á sviði landbúnaðar eru nú um 0,5% af verðmæti geirans, sem er um það bil helmingur af því sem þær mældust á árunum 2000-2002.

Skylt efni: OECD

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...