Sjálfsánar stafafurur á Óbrinnishólahrauni við Stóra- Skógarhvamm í Undirhlíðum í Hafnarfirði.
Sjálfsánar stafafurur á Óbrinnishólahrauni við Stóra- Skógarhvamm í Undirhlíðum í Hafnarfirði.
Mynd / Árni Valdason
Skoðun 25. ágúst 2026

Sjálfsáin stafafura metin á Suður- og Vesturlandi

Höfundur: Árni Valdason
Árni Valdason.

Ný rannsókn við Háskóla Íslands sýnir að sjálfsáning stafafuru á Suður- og Vesturlandi er algengust næst gróðursetningum, en getur einnig náð lengra út í opið land. Niðurstöðurnar benda til þess að vindur, gróðurfar og búsvæði skipta miklu máli við skipulag skógræktar og vöktunar. Rannsóknin er jafnframt ein ítarlegasta íslenska samantekt um tegundina.

Stafafura í skógrækt og náttúru

Stafafura hefur lengi verið meðal mikilvægustu trjátegunda í íslenskri skógrækt. Hún er harðgerð, þolir vind og rýran jarðveg og hefur víða reynst vel þar sem aðrar tegundir eiga erfiðara með að komast á legg. Fyrir marga landeigendur og skógræktarfólk er hún nytsamleg tegund, ekki síst sem frumherjatré, í jólatrjáarækt og sem hluti af framtíðarskógum.

Á sama tíma er stafafura aðflutt tegund sem getur sáð sér sjálf. Þess vegna skiptir máli að þekkja hvar, hversu langt og við hvaða aðstæður hún dreifist út fyrir gróðursetningar. Slík þekking nýtist bæði skógrækt og náttúruvernd, einkum þegar þarf að skipuleggja nýjar gróðursetningar eða meta þörf á vöktun við eldri reiti.

Ný gögn og íslensk heimild um stafafuru

Í nýlegu meistaraverkefni í líffræði við Háskóla Íslands var sjálfsáning stafafuru metin á Suður- og Vesturlandi. Rannsóknin byggðist á vettvangsvinnu sumarið 2025, þar sem sjálfsáning var skráð við 16 skógræktarreiti af mismunandi aldri og stærð. Markmiðið var ekki að dæma tegundina góða eða slæma, heldur að mæla útbreiðslu hennar utan gróðursetninga og greina hvaða þættir ráða helst fótfestu og landnám plantna.

Ritgerðin hefur einnig gildi sem íslensk heimild um stafafuru. Þótt tegundin hafi lengi skipt máli í skógrækt hafa fá umfangsmikil rit um hana komið út á íslensku. Ritgerðin er, eftir því sem næst verður komist, umfangsmesta útgefna ritið á íslensku um tegundina. Þar er einnig dregin saman þekking um uppruna hennar, eiginleika, vistfræði, ræktunarsögu, útbreiðslu, nytjar og stöðu innan og utan Íslands. Þannig getur hún nýst í íslenskri umræðu um tegundina.

Sjálfsáning mest næst jaðri, en nær einnig lengra frá

Niðurstöðurnar sýndu að sjálfsáning var mest næst jaðri gróðursetninga, þar sem fræframboðið er mest. Útbreiðslan var þó ekki bundin við fyrstu metrana frá móðurtrjám. Plöntur fundust einnig í töluverðri fjarlægð frá jaðri og í sumum tilvikum í nokkur hundruð metra fjarlægð. Slíkar plöntur voru ekki margar, en þær geta skipt máli til lengri tíma ef þær ná að vaxa upp og bera köngla.

Vindur mótar dreifinguna

Vindur reyndist einn skýrasti þátturinn í dreifingarmynstrinu. Þar sem fræ gátu borist undan ríkjandi vindi var sjálfsáning almennt bæði þéttari og náði lengra frá reitum. Þetta bendir til þess að áhætta á útbreiðslu sé ekki jöfn í allar áttir. Tvö svæði í sömu fjarlægð frá reit geta því verið í ólíkri stöðu. Við skipulag skógræktar dugir ekki að horfa aðeins til fjarlægðar frá næsta viðkvæma svæði. Einnig þarf að meta hvert vindur getur borið fræin.

Opið land og lágvaxinn gróður skipta máli

Gróðurfar og búsvæði skiptu einnig miklu máli. Sjálfsáning stafafuru kom helst fram á opnu landi með lágvöxnum eða gisnum gróðri, svo sem í lynglendi, víðikjarri og grasmóa. Hún var sjaldgæfari á vel grónu landi, í blautari búsvæðum og þar sem gróðurþekja var þétt.

Þétt mosalag virtist draga úr líkum á fótfestu, en stöðvaði hana ekki alls staðar. Á mosaþöktum hraunum fannst sjálfsáning einkum þar sem mosinn var rofinn eða þunnur, eða þar sem lyngblettir og op í yfirborðinu gáfu fræjum betri möguleika á að spíra og festa rætur.

Mikilvægt er einnig að hluti sjálfsáinna plantna var þegar farinn að mynda köngla utan gróðursetninga. Könglamyndun tengdist fyrst og fremst hæð plantnanna. Smærri plöntur báru sjaldan köngla, en líkurnar jukust hratt eftir því sem plönturnar hækkuðu. Þetta skiptir máli fyrir vöktun, því köngulberandi plöntur utan reita geta orðið upphaf að nýrri útbreiðslu, óháð upprunalegu gróðursetningunni.

Hvað þýðir þetta fyrir skipulag og vöktun?

Heildarniðurstaðan er hófstillt en skýr. Stafafura er áfram nytjategund í íslenskri skógrækt. Sjálfsáning hennar þarf hins vegar að vera hluti af skipulagi, staðarvali og áhættumati því nýskógur stafafuru getur skaðað líffræðilega fjölbreytni, fornminjar, jarðminjar, útsýni o.fl. Mest ástæða er til að fylgjast með svæðum í stefnu ríkjandi vinda þar sem opið, lágvaxið eða rofið land liggur utan við gróðursetningar. Þar getur regluleg skráning sparað vinnu síðar.

Í framkvæmd þýðir þetta einkum að:

  • fylgjast þarf sérstaklega með svæðum undan ríkjandi vindi,
  • skoða þarf opið, lágvaxið eða rofið land utan við gróðursetningar,
  • skrá þarf hvort sjálfsánar plöntur séu farnar að bera köngla,
  • taka þarf mið af nærliggjandi búsvæðum þegar metið er hvort staður henti fyrir stafafuru.

Í þessu felst ekki krafa um að banna notkun stafafuru í skógrækt eða gera ráð fyrir sömu áhættu við allar gróðursetningar. Munur milli svæða getur verið mikill og vandað staðarval og vöktun skipta miklu máli. Reglan um rétt tré á réttum stað á því vel við. Ný gögn benda til að við slíkt mat þurfi að taka betur mið af ríkjandi vindáttum, nærliggjandi búsvæðum og möguleikanum á sjálfsáningu utan gróðursetninga.

Höfundur er kennari, efna- og líffræðingur.

Skylt efni: Skógrækt

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...