Sameining Arla og DMK Group samþykkt
Fréttir 29. maí 2026

Sameining Arla og DMK Group samþykkt

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa samþykkt samruna afurðarisanna Arla í Danmörku og DMK Group í Þýskalandi.

Samruninn var samþykktur skilyrðislaust með þeirri athugasemd að sameining fyrirtækjanna hefði ekki teljandi áhrif á samkeppni á mjólkurvörumarkaði á evrópska efnahagssvæðinu. Sameinað fyrirtæki er nú fjórða stærsta mjólkurbú í heimi og það stærsta í Evrópu. Fyrirtækið nær til 11.200 mjólkurbænda í sjö löndum Evrópu með um 19,4 milljarða lítra af mjólk til að vinna úr.

Arla og DMK Group gerðu samning um sameiningu fyrir tæpu ári síðan. Síðan þá hefur sameiningin verið skoðuð af samkeppniseftirliti Evrópusambandsins.

Sameinað fyrirtæki mun vera með höfuðstöðvar í Danmörku og framleiða undir merkjum Arla. Arla og DMK Group framleiða mjólkurvörur fyrir evrópskan markað til dæmis ferska mjólk, smjör, jógúrt, rjóma og ost.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.