Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Hér er góð yfirlitsmynd af Reykjaböðunum og útliti þeirra. Kostnaður við byggingu baðanna er um 2,5 til 3 milljarðar króna en verkefnið er að fullu fjármagnað með eigin fé frá eigendum og lánsfjármögnun frá Arion banka.
Hér er góð yfirlitsmynd af Reykjaböðunum og útliti þeirra. Kostnaður við byggingu baðanna er um 2,5 til 3 milljarðar króna en verkefnið er að fullu fjármagnað með eigin fé frá eigendum og lánsfjármögnun frá Arion banka.
Fréttir 18. febrúar 2026

Reykjaböðin verða opnuð í vor

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nú styttist óðum í að Reykjaböðin opni, en um ræðir nýtt náttúrulón og heilsulind við rætur Reykjadals í Hveragerði.

Þar verður boðið upp á fjölbreytt upplifunarsvæði þar sem hver og einn finnur sitt athvarf frá öllum æsingnum. Þrjú félög fjárfesta eiga böðin en það eru fyrirtækin Hveraberg, Dionysus og Kynnisferðir. Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkur ár en framkvæmdir við byggingu baðanna hófust haustið 2024. Jóhanna Hreiðarsdóttir er framkvæmdastjóri baðanna en hún er mjög spennt fyrir opnuninni í vor.

„Já, hvort ég er. Hér munu gestir okkar geta notið augnabliksins, endurnærst í heitum lindum og fundið orkuna sem býr í íslenskri náttúru, hvort sem það er á björtum sumarkvöldum eða undir dansandi norðurljósum. Okkar markmið er að skapa eftirminnilega upplifun í einstöku umhverfi þar sem stórbrotin náttúrufegurð, kraumandi jarðhiti, íslensk menning og vellíðan renna saman,“ segir Jóhanna.

Sérstakt upplifunarsvæði

Í böðunum verður sérstakt upplifunarsvæði, en hvað þýðir það? „Já, við ætlum að leggja áherslu á að skapa heildræna vellíðunarupplifun þar sem áhrif íslenskrar náttúru og menning landsins leika lykilhlutverk.

Markmiðið er að skapa athvarf og rými, sem faðmar gesti með hlýju og mýkt. Hvert rými er hannað til að vekja skynfærin og leiða þig inn í ferðalag slökunar og endurnýjunar. Við nýtum innblástur frá japönskum onsen-heilsulindum, sérstaklega aðdáun okkar á einfaldleika og hreinleika sem þar ríkir og tvinnum saman við íslenska baðmenningu og norrænar baðhefðir,“ segir Jóhanna.

Steinefnaríkt jarðhitavatn

Í Reykjaböðunum verða heitu lindirnar um 900 fm að stærð, með steinefnaríku jarðhitavatni þar sem gestir geta valið sér sinn stað, hvort sem það er að tengjast náttúrunni undir berum himni eða njóta með drykk í hönd við arineld í skjóli fyrir veðri og vindum. Á útisvæði verður viðburðasána með sjálfvirkum búnaði til að halda jöfnu hitastigi, tveir kaldir pottar fyrir byrjendur og lengra komna ásamt „Kneipp“ vaðlaug með sjávarsteinum sem örva blóðrásina.

„Við verðum með frábært og einstakt baðhús en húsið hvetur fólk til að ganga í gegnum margs konar vellíðunarathafnir við mismunandi hitastig, áferð og ilm. Í boði verður snjóherbergi, gufubað, jurtapottur, upplifunarsturtur, sána, kaldur pottur, flotlaug og slökunarpottur með arineld. Upplifunin er því ólík eftir því hvort gestir kæla sig niður í ískalda snjóherberginu eða sitja í jurtapottinum og anda að sér ilminum af íslenskum jurtum úr umhverfinu,“ segir Jóhanna og bætir við að þeir, sem vilja láta dekra við sig geti bætt við völdum meðferðum á borð við slakandi nuddi, endurnærandi andlits- og líkamsmeðferðum eða flotmeðferðum í vatni.

Lónsbar og útisvið

Lónsbar verður bar á staðnum þar sem gestir geta fengið svalandi drykki meðan þeir baða sig. Við hlið barsins verður útisvið með hljóðkerfi og skjávarpa. Reglulega verður boðið upp á fjölbreytta viðburði, þar á meðal flot, gusur, lifandi tónlist og fleira. Í upphafi eða lok heimsóknar er tilvalið að njóta ljúffengra veitinga á veitingastaðnum þar sem boðið verður upp á létta rétti ásamt úrvali heitra og kaldra drykkja.

Opnað í maí

En hvenær er stefnt að því að opna böðin? „Stefnt er að því að opna Reykjaböðin í maí 2026. Framkvæmdir eru í fullum gangi og miðar vel áfram. Við hlökkum mikið til að taka á móti fyrstu gestum og vonum svo sannarlega að heitu lindirnar og baðhúsið muni slá í gegn, bæði hjá Íslendingum og erlendum ferðamönnum. Við gerum ráð fyrir að þurfa að ráða í 25 til 35 stöðugildi fyrsta árið,“ segir Jóhanna að lokum.

Skylt efni: Reykjaböðin

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.