Uppskeruhátíð og matarmarkaður í Miðfirði
Smáframleiðendur matvæla héldu uppskeruhátíð Matsjárinnar 7. apríl og stóðu fyrir matarmarkaði í leiðinni á Hótel Laugarbakka í Miðfirði.
Um var að ræða lokaviðburð á 14 vikna námskeiði undir merkjum Matsjárinnar sem hófs í byrjun janúar 2022. Á þessu 14 vikna tímabili voru haldnir sjö fræðslufundir og sjö fjarfundir. Matsjáin er ætluð smáframleiðendum matvæla sem vilja efla leiðtogafærni sína, öðlast aukna getu til að þróa vörur og þjónustu efla tengslanet sitt í greininni. Verkefnið er sambærilegt Ratsjánni, verkefni ferðaþjónustunnar.
Daginn eftir uppskeruhátíðina fóru þátttakendur í rútuferð um svæðið til að heimsækja smáframleiðendur og fengu kynningu úr rútunni á þeim sem ekki gafst tími til að heimsækja. Síðasta stoppið var í Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd þar sem fjölmargir smáframleiðendur af svæðinu framleiða vörur sínar.
Sigurdís Edda Jóhannesdóttir kom með góðgæti á markaðinn frá Ártanga.
Um 100 manns á matarmarkaðnum
Matarmarkaðurinn var haldinn í Grettissal hótelsins og er talið að um 100 manns hafi sótt hann, en hann var ekki síður haldinn til að gefa smáframleiðendunum tækifæri til að kynnast framleiðslu hvers annars.
Í stýrihópi Matsjárinnar voru þær Þórhildur M. Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka smáframleiðenda matvæla (SSFM), Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri SSFM, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðvesturlandi vestra (SSNV) og Svava Björk Ólafsdóttir eigandi RATA.
Í verkefnisstjórninni voru auk stýrihópsins, fulltrúar allra landshlutasamtaka landsins.
Ráðgjafafyrirtækið RATA sá um að leiða verkefnið fyrir hönd samstarfsaðilanna. Matsjáin var styrkt af Matvælasjóði.
Fleiri myndir frá uppskeruhátíð og matarmarkaði er að finna á Facebook-síðu SSNV.