Landbúnaður hluti af lausninni
Fréttir 23. nóvember 2026

Landbúnaður hluti af lausninni

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

- Stefnir í háar greiðslur fyrir losun

Guðmundur Steingrímsson.

Ísland mun ekki ná settum markmiðum um samdrátt í losun fyrir 2030. „Við þurfum að fá bændur meira með í þetta verkefni. Þeir þekkja landið og vita hvernig er hægt að rækta það og auka bindingu á gróðurhúsalofttegundum,“ segir Guðmundur Steingrímsson, starfandi framkvæmdastjóri Loftslagsráðs

Í fyrstu skýrslu Loftslagsráðs er mat lagt á frammistöðu Íslands í loftslagsmálum. Þar segir Íslendinga þurfa að grípa til mun metnaðarfyllri loftslagsaðgerða. Forsendur til að ná árangri eru sagðar góðar og hafi sjaldan verið betri bæði á Íslandi og alþjóðlega. Guðmundur segir samlegðaráhrif með að ná öðrum þjóðfélagsmarkmiðum orðin yfirgnæfandi augljós.

Bændasamfélagið komi sterkar að borðinu

„Bændasamfélagið þarf að koma sterkt að borðinu í þessu verkefni sem er í raun þjóðarátak”, segir Guðmundur. „Stóra umhverfismálið á Íslandi er að endurheimta votlendi og auka bindingu í íslenskum jarðvegi. Þar er stærsta losun Íslands. Bændur gegna því gríðarlega mikilvæga hlutverki að vera matvælaframleiðendur og þó Loftslagsráð hafi ekki farið markvisst í þá umræðu, þá finnst mér að með aukinni fjölbreytni í matvælaframleiðslu undir forystu bænda þá sé hægt að fara meira í að byggja upp auðgandi landbúnað sem eykur bindingu á sama tíma og við framleiðum matvæli. Við ættum að greina þetta saman. Þar er þekking og reynsla bænda ómetanleg. Mér finnst of lítið að gerast í samdrætti í losun í landbúnaði miðað við spár. Við þurfum að skoða hvernig landbúnaður getur verið hluti af lausninni á Íslandi.“

Dýrt að ná ekki markmiðum

Ísland mun ekki ná settum markmiðum um samdrátt í losun fyrir árið 2030 og því stefnir í að Ísland þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir árin 2026-2030. Mikilvægt er að hraða loftslagsaðgerðum til að minnka þann kostnað. Mögulegur kostnaður Íra hefur verið reiknaður á bilinu 8-26 milljarðar evra, en 3-12 milljarðar evra miðað við núverandi hugmyndir um hröðun aðgerða og jafnvel niður í ekki neitt við enn metnaðarfyllri aðgerðir.

„Írska loftslagsráðið hefur bent á að það er miklu skynsamlegra að verja peningunum núna í markvissar loftslagsaðgerðir sem auka lýðheilsu, bæta lífskjör og efnahagslegan grundvöll þjóðfélagsins, heldur en að borga fyrir vanefndir.“

Í dauðafæri að ná markmiðum 2035

„Við erum í dauðafæri til að ná markmiðum fyrir 2035. Það eru það miklar framfarir í tækni og vísbendingar um að loftslagsaðgerðir gagnist líka efnahagslífi, þjóðaröryggi, í baráttunni við að bæta lífskjör og lýðheilsu. Samlegðaráhrif með öðrum þjóðfélagsmarkmiðum eru orðin svo yfirgnæfandi augljós.“

Guðmundur segir árangursmat vera of gloppótt. „Það er búið að setja fram aðgerðaráætlanir. Okkur finnst þurfa að taka nokkur skref í viðbót til að tengja aðgerðirnar betur markmiðunum. Það eru of margar aðgerðir sem snúast um greiningar og fýsileikakannanir.“ Hann segir okkur þurfa að skilgreina samdrátt í tonnum í hverri aðgerð.

Ísland stendur sig áberandi verst af Norðurlöndunum

Í skýrslunni kemur fram að Ísland stendur sig áberandi verst allra Norðurlandanna, þar sem losun hefur dregist saman um allt að helming. „Við höfum frekar aukið losun með því að fá iðnað til landsins sem losar mikið. Við erum með hlutfallslega stóra atvinnuvegi sem við þurfum að glíma við til að ná losun niður, sjávarútveginn, stóriðjuna og ferðamannaiðnaðinn.“

Guðmundur segir Íslendinga ekki hafa hugsað nógu mikið um loftslagsmál síðan ævintýralegur árangur náðist í uppbyggingu hitaveitu, þó sú saga sé góð að segja og geti veitt öðrum innblástur. „Við notuðum innistæðuna í minni losun í að laða að stóriðnað sem losar mikið. Þannig fór losun Íslands upp. Nú þurfum við að hugsa um önnur verkefni í sama anda“, segir Guðmundur og vísar til hitaveitunnar.

Skylt efni: loftslagsmál

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...