Kuldi næstu daga
Fréttir 27. maí 2026

Kuldi næstu daga

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Varað er við snjókomu og því að bændur fyrir austan komi fé í skjól.

Teitur Arason, veðurfræðingur.

„Við vörum við því og viljum vekja athygli á því að það sé að fara að snjóa á þessum árstíma og bændur hugi að því að geta komið fé í skjól“, segir Teitur Arason veðurfræðingur Veðurstofu Íslands. „Þetta er snjókoma á óvenjulegum tíma, það verður send út gul viðvörun vegna snjókomu á Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi og yfir á Norðurland eystra og miðhálendið. Hún mun gilda mislengi eftir svæðum“, segir Teitur.

„Snælínan, frostmarkslínan fer aðeins upp og niður, þannig að það verður að gera ráð fyrir að hún sé frá því að vera nærri sjávarmáli og upp í kannski 200 metra.“

Hitamet hafa fallið á Bretlandi að undanförnu og heitt loft streymir norður eftir Atlantshafinu og mætir köldum loftmassa úr norðri. „Áreksturinn á sér stað yfir landinu og myndar þessa úrkomu“, segir Teitur sem segir kuldann vara í nokkra daga og gefa eftir þegar kemur fram á helgina. „Þetta verður orðið skárra á sunnudaginn, þá er minna hvítt í úrkomunni.“

„Ef þetta væri venjulegt norðanhret þá myndi seint að kvöldi vera kalt á öllu landinu. Vorhret er svo sem algengt en það var býsna hart 2024 og olli fugladauða. Það má segja að þetta sé ekki nærri eins hart núna.“

Skylt efni: kuldatíð | Veður

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.