Þeir Ragnar Magnússon, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Gaukur Ármannsson og Steinar Jónsson urðu hlutskarpastir í sveit Infocapital í Fyrstu deildinni. Matthías Þorvaldsson og Bjarna Einarsson vantar á myndina.
Þeir Ragnar Magnússon, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Gaukur Ármannsson og Steinar Jónsson urðu hlutskarpastir í sveit Infocapital í Fyrstu deildinni. Matthías Þorvaldsson og Bjarna Einarsson vantar á myndina.
Líf og starf 18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Höfundur: Björn Þorláksson

Það var dálítið vandræðalegur spilari sem þurfti að upplýsa fyrir sveitarfélögum að hann hefði farið þrjá niður á þremur gröndum í spili sem tölvan sagði að ætti að skila 10 slögum.

Vettvangurinn er efsta deildin í bridds, deildarkeppnin. Spilað var um fjögur efstu sætin 24.- 25. október sl. Suður spilar þrjú grönd eftir að austur hefur hindrað á tveimur hjörtum sem sýnir sexlit. 

Útspilið er laufgosi. Ef þú horfir aðeins á NS hendurnar, hvernig spilarðu spilið?

Sagnhafi hugsaði lengi áður en hann valdi fyrsta spilið, sem reyndist banabiti. Skipting lauflitarins er vitaskuld á þessu stigi fullkomlega óljós. Sagnhafi sá að með því að leggja kónginn á væri þó hægt að tryggja einn laufslag. Og ef spaðinn lægi upp í fjóra slagi, annaðhvort hónor annar á hægri hönd og hægt að svína í gegnum vestur eða toppa í 3-3 legu þá voru líka fjórir slagir í skógi í tígli. Vandræðalegt að dúkka ef ás-drottning í laufi væri á hægri hönd. Þess vegna lagði sagnhafi kónginn á. Og tapaði spilinu stórt örfáum sekúndum síðar þegar hann svínaði tígli og drottning austurs átti slaginn. Síðan fylgdu fimm laufslagir og hjartaás. Þrír niður.

Tölvan segir 10 slagir. Vegna þess að hún gerði ekki ráð fyrir að Hlynur Garðarsson fyndi þetta vel hugsaða og í raun banvæna útspil frá brotinni röð. Hlynur má vel við una að hafa ekki spilað einspilinu sínu í hjarta eins og sást á einhverjum borðum. 

Ein rök í lokin fyrir því að sagnhafi átti sennilega að leysa vandann, dúkka í fyrsta slag á grunni þess að langur lauflitur væri á vinstri hönd með ásinn í fararbroddi. Það hlýtur að teljast ólíklegt þegar betri spilarar landsins takast á, að sá sem opnar á tveimur hjörtum sé með tvo ása. Nú orðið opna flestir á einu hjarta með tvo ása og sex í hálit. Sveit Infocapital skoraði mest í mótinu, Málning varð í öðru sæti, Vinir Gylfa tóku bronsið og Munus endaði í fjórða sæti. Þessar sveitir berjast til úrslita um gullið síðar í þessum mánuði.

Umsjón: Björn Þorláksson,

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Marísól og leitin að gleðinni
18. nóvember 2026

Marísól og leitin að gleðinni

Vísnahornið
18. nóvember 2026

Vísnahornið

Nýtt fræhús á Vöglum
18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga
18. nóvember 2026

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga

Gosi banar geimi
18. nóvember 2026

Gosi banar geimi