Í göngunum sem liggja frá Húsavíkurhöfn að PCC á Bakka í síðustu viku. Þar sem notkun gangnanna er engin um þessar mundir fengu bændur í Suður-Þingeyjarsýslu að koma korni þangað í skjól vegna yfirvofandi óveðurs.
Í göngunum sem liggja frá Húsavíkurhöfn að PCC á Bakka í síðustu viku. Þar sem notkun gangnanna er engin um þessar mundir fengu bændur í Suður-Þingeyjarsýslu að koma korni þangað í skjól vegna yfirvofandi óveðurs.
Mynd / Haukur Marteinsson
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu byggi í skjól í jarðgöngum á Húsavík.

„Kornakrarnir sem eftir voru, einhverjir tugir hektarar, voru orðnir gulir og þroskaðir og við höfðum áhyggjur af því að þeir færu mjög illa í veðrinu sem var spáð í síðustu viku,“ segir Haukur Marteinsson, bóndi á Kvíabóli í samtali. Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu hafa komið upp öflugum félagsskap í kringum ræktun og þurrkun á korni. „Við vorum farnir að hringja í bændur á svæðinu til þess að kanna hvort við gætum hýst vagna með korni í skemmum hjá þeim. Svo fékk Arnór Orri Hermannsson á Björgum þá hugmynd, þegar hann horfði á gangnamunann við höfnina á Húsavík, að við gætum mögulega potað vögnunum í göngin þar sem PCC á Bakka er búið að loka og göngin standa auð.

Við áttum nokkur símtöl og fengum að henda vögnunum þarna inn, en það hentaði vel þar sem göngin eru nálægt þurrstöðinni okkar á Húsavík. Við grínuðumst með það að þetta væri dýrasta korngeymslan á Íslandi. Eitthvað af korninu var þarna í mjög stuttan tíma, en það síðasta fór í þurrkun núna á mánudaginn. Kornið var orðið það vel þroskað og þurrt að það var ekki farið að hitna mikið á þessum tíma.

Á síðustu tveimur sólarhringunum áður en veðrið skall á þresktum við á bilinu 40 og 50 hektara og fór kornið á samtals 13 vagna og einn tengivagn á vörubíl. Það var gott veður á þriðjudeginum og við kláruðum síðasta akurinn klukkan fjögur um nóttina áður en appelsínugula viðvörunin skall á á miðvikudeginum. Þetta slapp af því að við fengum lánaða vagna hjá verktaka á Húsavík og tengivagn sem tekur 24 rúmmetra sem hjálpaði okkur mjög mikið. Eins keyrðum við um sveitir og fengum lánaða vagna með háum skjólborðum.

Þetta gekk mjög vel, en við erum með nýja þreskivél sem við keyptum í sumar. Við byrjuðum að þreskja 8. september og hefur hver einasta þurra stund síðan verið nýtt til þess. Heilt yfir var uppskeran góð og gæði kornsins líka, þó svo að þetta hafi ekki verið jafn stórkostlegt ár og í fyrra þar sem allt korn var frábært. Við vorum með mjög góða akra, en inn á milli voru akrar sem voru lélegri. Meðaluppskeran af öllu svæðinu hefur líklega verið í kringum fjögur tonn á hektarann og var rúmþyngdin víða sex til sjö hundruð kíló í rúmmetra.

Nýja kornþurrkstöðin á Húsavík hefur gengið vel, en afköstin hafa verið nokkuð hæg þar sem akrarnir voru grænir og með mikilli títu fram í október, en kornið var samt sem áður gott. Fyrsta frostið kom fyrir tveimur vikum, en það hefði mátt koma fyrr svo að akrnarnir hefðu verið búnir að herða sig meira og gulna. Við höfðum áhyggjur þegar við fengum fyrsta kornið inn að það væri ekki af nógu miklum gæðum. Fyllingin var hins vegar komin og þegar kornið fer í gegnum þurrkarann nær það 88 prósent þurrefni,“ segir Haukur Marteinsson.

Skylt efni: óveður | kornrækt

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...