Frá undirritun samningsins. Efri röð frá vinstri: Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa og Þröstur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda. Neðri röð frá vinstri: Ásdís Eva Hannesdóttir, stjórnarformaður Frjálsa og Vala Valtýsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs bænda.
Frá undirritun samningsins. Efri röð frá vinstri: Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa og Þröstur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda. Neðri röð frá vinstri: Ásdís Eva Hannesdóttir, stjórnarformaður Frjálsa og Vala Valtýsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs bænda.
Mynd / Silla Páls
Fréttir 21. maí 2026

Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning um sameiningu lífeyrissjóðanna. Í fréttatilkynningu segir að markmið sameiningarinnar sé að nýta stærðarhagkvæmni til að lækka rekstrarkostnað, efla þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðsfélaga og launagreiðenda, minnka rekstraráhættu og um leið styrkja eigna- og áhættustýringu sjóðanna.

Með sameiningunni muni Frjálsi taka yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðsfélögum Lífeyrissjóðs bænda en fyrst um sinn verði haldið utan um áunnin réttindi sjóðsfélaga Lífeyrissjóðs bænda í lokaðri tryggingadeild. Viðræður um sameiningu sjóðanna hófust að hausti 2025. „Með sameiningunni verða sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda hluti af öflugum sjóðfélagahópi Frjálsa og mun sameinaður sjóður þjónusta rúmlega 85 þúsund sjóðfélaga. Við munum áfram leggja ríka áherslu á góða og persónulega þjónustu. Sameiningin leggur traustan grunn að öflugri framtíð með hagsmuni allra sjóðfélaga að leiðarljósi," segir Ágústa Eva, stjórnarformaður Frjálsa.

Lagt fram til samþykktar í júní

Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála og efnahagsráðurneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna. Fyrirhuguð sameining verður til umfjöllunar á kynningarfundum 4. og 5. júní. Ársfundur LSB er svo haldinn 19. júní þar sem sjóðsfélagar greiða atkvæði um sameininguna.

„Það eru ríkir hagsmunir fyrir Lífeyrissjóð bænda að sameinast stórum sjóði eins og Frjálsa sem er jafnframt með öflugan rekstrar- og eignastýringaraðila, Arion banka, sem veitir sjóðfélögum góða þjónustu. Við í stjórn Lífeyrissjóðs bænda bindum vonir til þess að sameiningin leggist vel í sjóðfélaga og að þeir staðfesti hana á ársfundi í júní. Stjórn telur jafnframt að með sameiningu sjóðanna verði lagður traustur grunnur að áframhaldandi uppbyggingu öflugs lífeyrissjóðs,“ segir Vala Valtýsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs bænda.

Heildareignir sameinaðs sjóðs eru um 672 milljarðar króna miðað við stöðu eigna 30. apríl. Þar af eru eignir Frjálsa um 626 milljarðar og eiginir Lífeyrissjóðs bænda um 46 milljarðar.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...