Hross í sveit. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Hross í sveit. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd / eks
Fréttir 3. júní 2026

Erfitt að sætta ólík sjónarmið

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Verðmæti efnisins sem Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna veltir um tveimur milljörðum krónum árlega í útflutningstekjur.

Mikið er í húfi fyrir fyrirtækið og búgreinin er drjúg fyrir bændur en greinin hefur sætt harðri gagnrýni vegna dýravelferðar. Starfsleyfi Ísteka var endurnýjað á dögunum og gildir til tveggja ára. Sótt var um leyfi fyrir blóðtöku úr 10.000 hryssum en var veitt fyrir 4.900 hryssum. Um 90 stóðbændur halda blóðmerar samkvæmt upplýsingum frá Ísteka.

Skiptar skoðanir eru á starfseminni meðal bænda og í samfélaginu. „Tekjur af blóðsölu úr meðalhryssu á árinu voru 128 þúsund krónur en sé eingöngu litið til úrvalsgóðu hryssnanna voru tekjurnar um 170 þúsund krónur á hvern grip. Uppgefnar tölur eru án vsk.,“ segir í pistli Kristins Hugasonar, samskiptastjóra Ísteka, í Bændablaðinu á síðasta degi ársins 2025. Hærra verð er greitt fyrir blóð sem inniheldur meira af PMSG hormóninu sem nýtt er til vinnslu lokaafurðarinnar sem Ísteka flytur úr landi.

Eftirlit með blóðmerum og blóðtakan sjálf lúta ströngum reglum og þarf eftirlitsaðili að vera viðstaddur sérhverja blóðtöku en aukin skilyrði voru sett í nýútgefið starfsleyfi.

Ólafur Þórisson er formaður búgreinadeildar hrossaræktenda hjá Bændasamtökum Íslands. Aðspurður hvort hann sjái fyrir sér að hægt sé að sætta þessi ólíku sjónarmið segir Ólafur það verða rosalega erfitt en um leið nauðsynlegt. „Við erum með anga innan hestamennskunnar sem er afar illa við þetta. Það mikilvægasta er að hafa þetta undir miklu eftirliti, rannsaka áhrifin enn betur og hafa allt enn opnara.“ Ólafur ræðir þennan umdeilda anga hrossaræktar og fleira til í miðopnuviðtali blaðsins.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.