Er sama hvaðan kjötið kemur?
Á faglegum nótum 23. nóvember 2026

Er sama hvaðan kjötið kemur?

Höfundur: Harpa Ólafsdóttir

Í ljósi þess að innflutningur kjötafurða hefur aukist talsvert undanfarin ár getur verið áhugavert að rýna í hvaðan kjötið kemur, ekki síst í ljósi þess að notkun sýklalyfja í dýrum er mjög mismunandi eftir löndum.

Frá árinu 2017 til 2025 jókst innflutningur á öllum helstu kjötafurðum. Sem dæmi jókst innflutningur á alifuglakjöti fyrir þetta tímabil um 52%. Þá var flutt inn 35% meira svínakjöt frá 2017 til 2025 og aukningin nam 117% fyrir nautakjöt.

Ef við skoðum innflutning á nautakjöti eftir löndum þá má sjá að mest er flutt inn frá Þýskalandi, en flutt voru inn 922 tonn árið 2025 ef tekið er tillit til beinahlutfalls til að hafa tölur samanburðarhæfar við innlenda framleiðslu. Í öðru sæti var Holland með 811 tonn sem margfaldaði innflutning sinn milli ára. En Pólland hefur einnig verið að auka hlutdeild sína í innflutningi á nautakjöti þar sem flutt voru inn 259 tonn árið 2025 og frá Litáen voru flutt inn 209 tonn.

Heimild: Hagstofa Íslands, tekið er tillit til beinahlutfalls.
Heimild: Hagstofa Íslands, tekið er tillit til beinahlutfalls.

Það má einnig sjá ákveðna breytingu milli ára á innflutningi á svínakjöti eftir löndum. Danmörk og Þýskaland halda áfram að vera stærstu innflutningslöndin þar sem 904 tonn voru flutt inn af svínakjöti frá Danmörku árið 2025 og 853 tonn frá Þýskalandi. Hins vegar hefur innflutningur frá Litáen aukist verulega milli ára en flutt voru inn 579 tonn þaðan árið 2025. Þá voru flutt inn 348 tonn af svínakjöti frá Hollandi og 140 tonn frá Póllandi.

Sé horft til þróunar innflutnings á alifuglakjöti eftir löndum undanfarin ár, þá má sjá að innflutningur frá Þýskalandi hefur snarminnkað þar sem einungis voru flutt inn 134 tonn árið 2025 en 1.127 tonn árið 2017. Mest var flutt inn af alifuglakjöti frá Danmörku árið 2025, eða 1.198 tonn, en innflutningur á alifuglakjöti hefur einnig verið að aukast síðustu ár frá Litáen og Póllandi. Árið 2025 voru flutt inn 796 tonn frá Litáen og 719 tonn frá Póllandi.

Heimild: Hagstofa Íslands, tekið er tillit til beinahlutfalls

Sala sýklalyfja til dýra sem notuð eru í matvælaframleiðslu hefur verið mjög lítil á Íslandi í evrópskum samanburði. European Medicines Agency (EMA) hefur um árabil tekið saman samræmd gögn fyrir Evrópulönd. Þó svo að þessi gögn sýni ekki beinan samanburð fyrir einstaka tegundir afurða, þá gefa þessar tölur ágæta vísbendingu um heildarnotkun sýklalyfja, þar sem miðað er við milligrömm af virku sýklalyfjaefni miðað við áætlaðan lífmassa búfjár. Á tímabilinu 2017–2022 var sala sýklalyfja til dýra á Íslandi á bilinu 3,5–4,8 mg/PCU sem var næstlægsta gildið meðal 31 Evrópulands, á eftir Noregi. 

Heimild: European Medicines Agency

Pólland sker sig úr fyrir að vera með langhæstu gildin, eða yfir 40 sinnum meira magn af sýklalyfjum en mælingar sýna fyrir Ísland og í raun gildir það fyrir öll þau lönd sem við flytjum inn kjöt frá að það eru vísbendingar um að það sé margfalt meira magn af sýklalyfjum notað í innflutt kjöt heldur en það kjöt sem framleitt er hér á landi.

Ef neytendum er annt um gæði og heilbrigði þeirra kjötafurða sem þeir borða þá má út frá þessum vísbendingum segja að það geti vissulega skipt máli að kynna sér hvaðan kjötið kemur.

Þá þarf einnig að líta til þess fyrirvara Hagstofunnar að upprunaland getur mögulega verið óþekkt og þá miðast skráning við það land sem varan er flutt inn frá.

Skylt efni: hagtölur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...