Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Ingólfur og Alessandro í gróðurhúsi Ingólfs þar sem kirsuberjatrén voru í fullum blóma.  Alessandro hafði á orði að það að stíga inn í gróðurhúsið væri eins og að koma heim til Sardiníu.
Ingólfur og Alessandro í gróðurhúsi Ingólfs þar sem kirsuberjatrén voru í fullum blóma. Alessandro hafði á orði að það að stíga inn í gróðurhúsið væri eins og að koma heim til Sardiníu.
Mynd / smh
Fréttir 6. maí 2016

Átti ekki von á því að ég myndi gerast vínbóndi

Höfundur: smh
Á dögunum kom hingað til lands Alessandro Monni, ítalskur vínbóndi frá Sardiníueyju, í þeim tilgangi að skoða möguleika á því að rækta vínvið undir berum himni á Íslandi. Ræddi hann við nokkra íslenska bændur og að lokum sættust Ingólfur Guðnason og Sigrún Elfa Reynisdóttir, garðyrkjubændur á Engi í Laugarási, á að leyfa honum að gera nokkrar tilraunir í landi þeirra. 
 
Alessandro og Ingólfur fara yfir málin; hvernig farsælast sé að planta græðlingunum. Tveir þriðju hlutar sprotans eru settir niður, eða þannig að aðeins eitt brum sé ofan jarðar.
 
Alessandro er 38 ára gamall og lærði vínfræðin, bæði víngerð og vínviðarræktun, í Pisa í Toskana-héraði Ítalíu. Hann er sjálfur frá bænum Lollove á Sardiníu. Þar rekur hann lítið vínframleiðslufyrirtæki og er framleiðslan nokkur þúsund flöskur á ári sem hann selur í heimabæ sínum. Alessandro leitar nú hófanna til að hagnýta sér þekkingu sína og menntun – og hluti af þeirri leit er að gefa Íslandi gaum sem vínframleiðslulandi. Telur hann að það þurfi að ganga úr skugga um það með tilraunum, að sú viðtekna skoðun sé rétt, að ræktun vínviðar undir berum himni á Íslandi sé vonlaus. Hann telur að það gæti verið  auðveldara að rækta vínvið á Íslandi en epli, perur og annað í þeim dúr. Veigamestu rökin fyrir því að þetta geti verið mögulegt sé sú staðreynd að það séu sólarstundirnar sem vegi í raun þyngra en sjálft hitastigið. Þannig að hinir löngu íslensku sumardagar munu gagnast vínviðnum vel vel við að þroska aldin sín.
 
Margt líkt með eyjunum
 
Hann segist hafa orðið heillaður af Íslandi eftir að hafa kynnt sér sögu landsins og landbúnaðinn sem hér er stundaður. Hann hafi líka séð ýmis líkindi með eyjunum tveimur, til að mynda varðandi sauðfjárrækt og fiskveiðar. Hann hafi lesið sér til um að ræktun á vínviði utan dyra væri talin óhugsandi og það hafi verið honum enn frekari hvatning til að reyna slíkt. Hann hafi því ákveðið að heimsækja landið og í leiðinni að athuga þennan möguleika á að fá að gera nokkrar tilraunir hjá bændum. 
 
Syrha-græðlingar á Engi
 
Ingólfur og Sigrún á Engi tóku Alessandro vel og sýndu honum hvaða landkostir væru í boði hjá þeim. Ingólfur segist ekki hafa átt von á því að gerast vínbóndi á Íslandi. „Alessandro hefur tröllatrú á að hér sé hægt að rækta vínvið. Það brýtur að vísu gegn skoðunum flestra. Í Danmörku er sums staðar fengist við ræktun vínviðar, á völdum svæðum og eftir miklar tilraunir. Árangurinn þar er misgóður en gengur sem sagt á allra bestu stöðum.  Sama er að segja um Suður-England. Alessandro kemur frá þeim ódáinsakri Sardiníu þar sem meira að segja næturfrost eru óþekkt fyrirbæri, svo ég geri mér ekki miklar vonir. Þegar við vorum að leita að frostlausum bletti í görðunum hér í slyddu og einni gráðu yfir frostmarki upp úr miðjum apríl var hitinn 24 gráður heima hjá honum. En hann sótti þetta fast og ég ákvað að leyfa honum að gera þessa forathugun.  
 
Ingólfur og Alessandro athuga ástandið á jarðveginum á Engi – en þar var enn frost í jörðu.
 
Við settum græðlinga af Syrah-þrúgum í óupphitað plasthús og síðan er ætlunin að setja niður græðlinga utanhúss þegar frost fer úr jörðu. Hann virðist ekki hafa unnið mikla heimavinnu hvað varðar veðurfarið hér, seina vorkomu, kaldan mýrajarðveg, næturfrosthættu og stutt, rysjótt sumur.  En við sjáum hvað setur.  Hann bendir á að hér eru ekki þeir sjúkdómar sem þarf að kljást við sunnar í álfunni og það mun vera rétt hjá honum. Tilraunir með fleiri yrki, einkum frá norðlægum slóðum, gæti hugsanlega leitt til jákvæðrar niðurstöðu með tíð og tíma,“ segir Ingólfur. 

3 myndir:

Skylt efni: Vínviður | vínviðarrækt

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.