Landbúnaðarsýningin var fyrst haldin 2018, næst 2022 og er sýningin í ár sú þriðja.
Landbúnaðarsýningin var fyrst haldin 2018, næst 2022 og er sýningin í ár sú þriðja.
Mynd / bbl.is
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er í þriðja sinn sem sýningin er haldin og í ár er sýningarrýmið allt uppbókað.

Yfirskrift sýningarinnar í ár er Íslenskur landbúnaður 2026 og er áherslan á að kynna bæði fjölbreytni íslensks landbúnaðar og íslenskrar matvælaframleiðslu sem og að kynna tæki og rekstrarvörur fyrir landbúnað til bænda og annarra gesta.

Ólafur M. Jóhannesson.

Undirbúningur gengur vel

Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri sýningarinnar, segir undirbúninginn ganga mjög vel. „Það er mun meiri aðsókn að sýna en verið hefur þannig að við erum í raun búin að sprengja sýningarrýmið og allt er upp pantað.“ Á sýningunni verða um 100 fyrirtæki. „Þó að þetta séu sirka hundrað fyrirtæki sem eru með í ár þá eru þau mörg með umboð fyrir önnur fyrirtæki sem eru alls staðar í heiminun, til að mynda í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína,“ segir Ólafur.

„Þetta er ótrúlega fjölbreytt sýning og fólk er spennt fyrir því að vera á svæðinu og skoða sig um. Það hefur verið mest stemning fyrir því,“ segir Ólafur. Sýningin er opin öllum en börn yngri en 12 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum. „Við leggjum mikla áherslu á öryggi en það skiptir máli til að allt gangi vel,“ útskýrir Ólafur.

Fjölbreyttir básar

Á sýningunni verður bæði inni- og útisvæði og unnið er að því að skipuleggja auka væði fyrir utan höllina. „Það er fullt af nýjum fyrirtækjum að koma inn á sýninguna í ár auk þeirra sem hafa komið áður. Við erum með margt sem tengist ferðaþjónustu, húsabyggingu og rekstrarvörum. Það þarf náttúrlega óhemjumiklar rekstrarvörur til að reka bú,“ segir Ólafur. „Svo verður framleiðsla bænda á staðnum, það eru þá minni fyrirtæki að selja afurðir bænda. Í ár verður til dæmis bæði Matarkistan í Skagafirði á staðnum, Verndum og ræktum og Samtök smáframleiðenda matvæla.“

Áhersla verður einnig á skógrækt en skógræktarfélög verða á staðnum sem og Land og skógur að kynna það nýjasta. „Í ár verður einnig mikið af orkulausnum, til dæmis í sambandi við sólarorku, líkt og sólarsellur sem hægt er að setja upp á bæjunum til að spara sér rafmagnskostnað. Svo er slatti af öryggistækni sem er alltaf mikilvægt.“

Stórar og miklar vélar á svæðinu

„Það verður geysilega mikið af landbúnaðarvélum, bæði inni og úti, og allir stærstu vélarsalar landsins verða á svæðinu. Það verða allar tegundir af vélum fyrir reksturinn og við vitum að það verða nýjungar þar, jafnvel stórar vélar sem eru að koma að utan á sýninguna. Þetta verða stórar og miklar vélar,“ segir Ólafur. En það verða ekki eingöngu nýjungar. Gamlar dráttarvélar verða auk þess til sýnis á vegum Ferguson félagsins.

„Svo verða fyrirtæki með dróna. Drónar eru að verða öflugir í landbúnaði og það er hægt að nýta þá í ýmislegt, jafnvel að dreifa bæði áburði og útsæði. Ég hlakka sjálfur mest til að sjá sýninguna koma saman og allt fólkið. Aðsóknin hefur verið frábær og við búumst við sambærilegri í ár,“ segir Ólafur að lokum.

Skylt efni: Landbúnaðarsýning

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f