Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Með könnuninni var reynt að leggja mat á áætlaða fjárfestingaþörf í nautakjötsframleiðslu hérlendis.
Með könnuninni var reynt að leggja mat á áætlaða fjárfestingaþörf í nautakjötsframleiðslu hérlendis.
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu fyrir könnun um nautakjötsframleiðslu á Íslandi nú í janúar 2026.

Tilgangur könnunarinnar var tvíþættur, að sögn Guðrúnar Bjargar Egilsdóttur hjá Bændasamtökunum.

„Já, það var að reyna að leggja mat á áætlaða fjárfestingaþörf í nautakjötsframleiðslu á Íslandi en könnunin er einnig hluti af verkefni RML, sem ber nafnið „Framtíðaraðstaða fyrir holdakýr – greining, hönnun og áhrif á búrekstur“ en það verkefni er styrkt af þróunarsjóði nautgriparæktarinnar.

Hitt er markmið RML vegna hluta verkefnisins en það er að greina og meta raunverulega þörf á uppbyggingu á aðstöðu fyrir holdakýr, sem nýtist til að meta fjárfestingaþörf þeirra nautakjötsframleiðenda sem eru með slíkan búskap,“ segir Guðrún Björg.

Könnunin var lögð fyrir alla nautakjötsframleiðendur á Íslandi og valkvætt var að svara henni. Sömuleiðis er valkvætt að svara ekki öllum spurningum. Allar niðurstöður, sem birtar verða, verða órekjanlegar til einstakra svarenda. Samkvæmt upplýsingum frá RML voru holdakýr í nóvember 2025 3.750 talsins í landinu.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.