Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Vörslusvipting, dagsektir og kæra
Mynd / smh
Fréttir 29. júní 2026

Vörslusvipting, dagsektir og kæra

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Matvælastofnun birti á dögunum yfirlit yfir stjórnvaldsákvarðanir í dýravelferðarmálum frá því í febrúar og fram í maí á þessu ári. Málin voru sextán talsins og snéru öll að húsdýrum, sex málanna snéru að gæludýrum og tíu að hestum, nautgripum eða sauðfé.

Alls voru sex einstaklingar sviptir vörslu gæludýra vegna óviðunandi heimilisaðstæðna eða vanrækslu. Í einu tilviki var um að ræða slíkan fjölda dýra, ketti, hunda, fugla og skrautfiska, að umsjónarmaður þeirra var ekki talinn geta annast þau með fullnægjandi hætti. Í öðru tilviki fór umráðamaður katta í vikufrí án þess að ráðstafa pössun, eftirliti eða fóðrun læðu og kettlinga. Sá einstaklingur var sviptur vörslu og fékk þar að auki stjórnvaldssekt upp á 144.000 krónur.

Endurtekin brot

Tvö málanna snéru að endurteknum brotum á velferð sauðfjár og nautgripa. Einn sauðfjárbóndi var sviptur vörslu alls sauðfjár vegna endurtekinna brota og tekur sú svipting gildi 1. október hafi hann ekki ráðstafað fénu sjálfur. Annar aðili var sviptur vörslu nautgripa að hluta auk þess sem lagðar hafa verið á hann dagsektir til að knýja fram úrbætur á aðbúnaði bæði sauðfjár og nautgripa. Dagsektir voru lagðar á nautgripabónda til að þvinga til úrbóta í bæði mars og apríl.

Vanrækt hross

Umráðamaður stórrar hrossahjarðar var sviptur vörslu hrossanna vegna vanrækslu í apríl. Bæði vanrækti hann fóðrun og brynningu sem og hann hugaði ekki að hrossum sem voru sjúk og horuð á viðunandi máta. Annar einstaklingur vanrækti aðstöðu hrossa og hófhirðu þeirra. MAST réð verktaka til að bæta úr þessu og fjarlægja slysahættur í umhverfi hrossanna á kostnað umráðamanns þeirra. Tvö önnur mál snéru að slæmum aðbúnaði og vanrækslu hrossa.

Kæra vegna barsmíða

Í maí kærði MAST nautgripabónda til lögreglu eftir að ábending barst um barsmíðar bónda á bæði kúm og kvígum. Í sama mánuði fékk sauðfjárbóndi stjórnvaldssekt upp á 286.000 krónur þar sem hann skar tvær kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund eins og skylt er. Hægt er að senda ábendingar sem snúa að dýravelferð inn á vefsíðu Matvælastofnunar.

Skylt efni: dýravelferð | Mast

Ullarvika í fjórða sinn
Fréttir 28. september 2026

Ullarvika í fjórða sinn

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október n...

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða
Fréttir 28. september 2026

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs verða skert um 3,2 milljarða króna á næsta á...

Bændur hljóta viðurkenningu
Fréttir 28. september 2026

Bændur hljóta viðurkenningu

Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í V...

Hestamynd og hellabíó
Fréttir 28. september 2026

Hestamynd og hellabíó

Reykjavík International Film Festival (RIFF) hefst 24. september og stendur yfir...

Hægur samdráttur og langt frá markmiðum
Fréttir 28. september 2026

Hægur samdráttur og langt frá markmiðum

Tæplega fjögurra prósenta heildarsamdráttur varð í heildarlosun gróðurhúsaloftte...

Greiðslustaðan afar erfið
Fréttir 25. september 2026

Greiðslustaðan afar erfið

Sala á vörum Ístex hefur verið góð seinni part sumars. Greiðslustaðan er þó enn ...

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu
Fréttir 25. september 2026

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu

Sláturfélag Suðurlands frestar verðhækkunum haustsins til þess að koma til móts ...

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert ...