Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Vísnahornið
Mynd / Úr safni
Líf og starf 13. apríl 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Ég fór ekki rétt með vísu Heiðreks í síðasta blaði, að sögn kunngugra. En hún á að vera svona og vonandi geta Húnvetningar fyrirgefið mér:

Það sem skilur okkur að

er í raun og veru,

að Húnvetningar þykjast það

sem Þingeyingar eru.

Einnig mun ögn rangt farið með vísu Rósbergs um Heiðrek og skal leiðrétt enda skal hafa það sem sannara er:

Heiðrekur á sínum Saab

suðrúr bænum æddi,

suma meiddi, suma drap,

en suma bara hræddi.


Eyjólfur Jónasson var f. á Gillastöðum í Laxárdal 1889 en flutti ungur að

Sólheimum og var kenndur við þann bæ jafnan, hann var kunnur hagyrðingur. Eyjólfur mun hafa ort um sitt lífshlaup:


Ungur sá ég heiði háa,

haldinn dável knár.

Yfir flár og frerann bláa

flaug á gráum klár.

Þurfti ekki þæfða glófa,

þá var í mér blóð.

Treysti bara á harða hófa

hunsaði hverja slóð.



Frændi Eyjólfs var Jóhannes úr Kötlum og var góð vinátta þeirra,um Jóhannes orti Eyjólfur og bætti við skýringum:


Jóhannes hefur jafna lund. (Ölvaður)

Jagar hann til sín indæl sprund. (Bölvaður)

Postulíns eitt sinn átti hund. (Mölvaður)

Alsæll fyrst á dauðastund. (Fölvaður)

Jóhannes Kristjánsson eða Dala Jói frá Bugðustöðum var þekktur á sinni

tíð af hagmæslsku og hestamennsku Þeir voru vinir Dala Jói og Eyjólfur, sem fékk þessa vísu frá vini sínum:


Ég læt vaða öllu á,

eldar hraðir glóa,

eigðu blað með bögu frá

Bugðustaða Jóa.



Ekki þarf að skýra þessa vísu sem Dala Jói orti:

Finnst mér ganga flest í vil

fyrst ég hef á járnum,

meðan ég á tuggu til

töðu gef ég klárnum.



Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum var auðvitað þjóðkunnur fyrir sínar vísur:

Ef á borðið öll mín spil

ætti ég fram að draga.

Held ég yrðu skrýtin skil

á skuldum fyrri daga.

Og Gísli frá Eiríksstöðum lýsir sínum tilfinningum svona:


Finnst mér hæfa að hlægja dátt

helst það svæfir trega

þó að gæfan gefi smátt

gullið ævinlega.

Flest í leyni fellir mann.

Fátt vill meinum bægja.

Lífsins eina ánægjan

er að reyna að hlægja.



Jakob Jónsson frá Varmalæk í Borg orti þegar Séra Ólafur Jens Sigurðssprestur í Hvanneyrar prestakalli byggði sér tveggja hæða hús:


Mótin fyllast meðan drottins andi

mildur svífur yfir þessu landi

heiður og hreinn.

Við horfum yfir handarverk að lokum

hér var steypt úr fjöldamörgum pokum

utan um einn.

Ekki veit ég hvern Jakob á Varmalæk yrkir um þessa vísu, en margir gætu passað við lýsinguna trúi ég:


Hefur námsins þunga þreytt

þraut í tveimur álfum.

Enda er svo til ekki neitt

orðið af honum sjálfum.



Svona yrkir Jakob á Varmalæk um endurbyggingu á ótilteknu húsi:


Húsið reisir harðskeytt lið,

hvílík snilld og kraftur.

Nú telst það bráðum tilbúið

til að fjúka aftur.

Umsjón: Magnús Halldórsson

Mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Umsögn um byggðastefnu lokið
Fréttir 27. ágúst 2026

Umsögn um byggðastefnu lokið

Gert er ráð fyrir tæpum fjórum milljörðum króna í framlög til byggðaáætlunar á á...

Handtökur vegna innbrots
Fréttir 27. ágúst 2026

Handtökur vegna innbrots

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fólk sem grunað er um að tengist ...

Skógræktarátak
Fréttir 27. ágúst 2026

Skógræktarátak

„Við erum auðvitað svolítið stórhuga að ætla okkur að planta 50.000 trjám árlega...

Lokanir vegna viðhaldsvinnu
Fréttir 26. ágúst 2026

Lokanir vegna viðhaldsvinnu

Núna er unnið að viðgerðum á brúni sem liggur yfir Jökulsá á Fjöllum við Hringve...

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...