Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku:

Er af grjóti ofgnótt

urt þó fegri svörð,

þú ert hörð og hornótt

háttvirt fósturjörð.

Pétur Stefánsson yrkir þessa stöku, en efast um að hún dugi til að fara í gegnum Gullna hliðið:

Nú er ég kominn nafni minn

nokkuð af syndum kvalinn.

Hleyptu mér nú aumum inn,

inn í himnasalinn.

Óhætt er að segja að Jón Gnarr veki stöðugt athygli með sínum uppátækjum, snillingurinn Jón Jens gerir atburðum skil að hætti Davíðs:

Er Viðreisn tók að jafna um Jón

fannst Jóni komið nóg

af þrásetu í þingflokknum

og þaðan burt sig dró.

Því allmargt hafði orðið þar

til ama og jafnvel tjóns

og ekki þýddist Þorgerður,

við þrautasögu Jóns,

hann oft um áheyrn bað

samt afréð kerling það,

að hunsa flest þau hugðarmál

og hreyfast ekki úr stað.

Margt hefur verið ort um presta í gegnum tíðina og margir prestar hafa verið hagmæltir. Margrét Jónsdóttir, skáldkona í Reykjavík, orti þessa vísu undir messu:

Æ, hættu nú prestur að prédika'um synd

á postuladyggðum að klifa.

En farðu'út á strætin sem fyrirmynd

og fólkinu kenndu að lifa.

Í vísnabók Káins má finna þessa vísu:

K. N. prestur enginn er -

og engum meiri hann er

verstur sjálfum sér -

og svo eru fleiri.

Séra Sigurður Norland, prestur í Hindisvík, var kunnur á sinni tíð, gerir svona grein fyrir hrossaeign:

100 á ég hrossin góð

hér við 40.

Finnst nú varla fegra stóð

'49.

Um kirkjustaðinn Tjörn á Vatnsnesi yrkir presturinn þennan spádóm:

Bráðum sneiðist byggðin hér

borgin seiðir marga.

Tjörn í eyði eflaust fer.

Engin leið til bjarga.

Þessi vísa Sigurðar þarfnast ekki neinna skýringa:

Útlaganna óðal sést

enn hjá fannatindum.

Sekra manna býli best

byggt í Hvannalindum.

Séra Ögmundur Sívertsen þjónaði líka Tjörn á Vatnsnesi, hann orti:

Það er það sem að mér er

ég óspart skilding farga.

Herrann vissi hentast mér

að hafa þá ekki marga.

Ögmundur orti líka þessar og kallaði eftirmæli ársins 1840:

Margir hlupu hátt af stað

hugðust sleikja rjóma

prestur á Tjörn sér brúðar bað

en bölvun fékk hann tóma.

Það sem helst honum þótti að

að þessi ei veittist píka

of fátækur í allan stað

og óágengur líka.

Séra Ögmundi gekk illa að ná sér í konu og var 43 ár þegar það tókst:

Prestinum illa giftast gekk,

gigtar flengdur hrísi,

uns um síðir Ólöfu fékk

fyrir átta merkur af lýsi.

Og klerkur orti þegar konan kom:

Komin Ólöf er að Tjörn,

ein frá Þorkelshóli.

Á hennar malar kærleikskvörn

kargur hempudóli.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...