Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Dr. Jenny Hagen, einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði lífhreyfifræði, stoðkerfisfræða og endurhæfingar hesta, við störf. Hún verður með vinnustofu á Íslandi í vor.
Dr. Jenny Hagen, einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði lífhreyfifræði, stoðkerfisfræða og endurhæfingar hesta, við störf. Hún verður með vinnustofu á Íslandi í vor.
Mynd / aðsend
Fréttir 5. febrúar 2026

Vinnustofa í hestaheilsu

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði lífhreyfifræði, stoðkerfisfræða og endurhæfingar hesta heldur námskeið á þessu sviði á Íslandi í vor.

Eiðfaxi auglýsti á dögunum námskeið í hestabæklun og lífhreyfifræði sem haldið verður hjá Eldhestum í Ölfusi í maíbyrjun. Dr. Jenny Hagen, dýralæknir, vísindamaður og löggiltur járningamaður, með sérhæfingu í bæklun, endurhæfingu og þjálfun hesta, kennir á námskeiðinu. Hún er einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði lífhreyfifræði, stoðkerfisfræða og endurhæfingar hesta.

„Tveggja daga vinnustofan beinist að alhliða og hagnýtu mati á hrossum til að koma í veg fyrir bæklunarmeiðsli eða greina þau eins fljótt og auðið er. Auk þess eru stjórnun bæklunarsjúklingsins, endurhæfing og þjálfun viðfangsefni málstofunnar í fræðilegri nálgun og framkvæmd,“ segir Hagen í samtali við Bændablaðið.

Hún starfaði áður sem dósent við Háskólann í Leipzig þar sem hún stofnaði rannsóknarhóp um lífhreyfifræði og bæklun hesta. Hún hefur leitt fjölda rannsókna á áhrifum járningar, hófsnyrtingar og þjálfunar á gangtegundir og lífhreyfifræði útlima og býr yfir meira en 20 ára reynslu af klínísku starfi, rannsóknum og kennslu víðs vegar um heiminn.

„Ég held að það sé nauðsynlegt að knapar, þjálfarar, dýralæknar og járningamenn séu menntaðir til að meta truflanir í hreyfikerfinu áður en þær verða klínískt mikilvægar,“ segir Hagen og bætir við að þetta sé spurning um að viðhalda frammistöðu og dýravelferð. „Sérstaklega í hestum sem eru notaðir til reiðmennsku eða jafnvel keppni.“ Hún segir að þetta eigi jafnt við um íslenska hesta sem önnur hestakyn.

Námskeiðið er opið öllum áhugasömum, en hentar sérstaklega vel fyrir dýralækna, járningamenn, reiðkennara, þjálfara, tamningamenn, hestameðferðaraðila og ekki síður metnaðarfulla hestaeigendur sem vilja dýpka skilning sinn á hreyfingum, heilbrigði og samspili hófa og líkama hestsins, segir í kynningu.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...