Það líða að jafnaði 400 ár þar til almyrkvi verður aftur sjáanlegur frá sama stað.
Það líða að jafnaði 400 ár þar til almyrkvi verður aftur sjáanlegur frá sama stað.
Mynd / Jongsun Lee
Fréttir 5. ágúst 2026

Viðbúnaður við almyrkva á sólu

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Undirbúningur í tengslum við almyrkva á sólu þann 12. ágúst næstkomandi er mikill og er kominn langt á landinu öllu. Vestfirðir eru eitt helsta álagssvæðið en þar mun sólmyrkvinn fyrst nema land við Straumnesvita á Hornströndum kl. 17:34:28.

Almyrkvinn sést lengst við Látrabjarg þar sem hann stendur yfir í tvær mínútur og þrettán sekúndur. Stjórnvöld benda fólki á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu að reyna að njóta þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi.

Sölvi Guðmundsson.

Afmörkuð bjargbrún og umferðarstýring

Unnið er að umferðarstýringu, viðbúnaði, upplýsingagjöf, náttúruvernd og móttöku gesta á öllum svæðum sem eru á almyrkvaslóð. Búist er við miklum fólksfjölda við Látrabjarg og því er verið að afmarka bjargbrúnina, bæta salernisaðstöðu og undirbúa umferðarstýringu og mögulegar lokanir þegar ákveðnir staðir mæta þolmörkum. Einstefna verður á veginum að Látrabjargi í aðdraganda almyrkvans og til baka eftir atburðinn. Landvörðum verður fjölgað og úrbætur verða gerðar á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa á svæðinu. Staða fjarskiptakerfa við Látrabjarg er viðkvæm og hefur uppbygging fjarskiptainnviða á svæðinu staðið til en tafist. Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja sérstaklega úrbætur vegna almyrkvans með aðkomu farnetsfyrirtækja þar sem ekki næst að ljúka lagningu rafstrengja og ljósleiðara á svæðinu í tæka tíð.

Mikill undirbúningur

Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða, segir undirbúninginn hafa staðið lengi á Vestfjörðum en að hann hafi fyrst frétt af almyrkvanum fyrir um þremur árum þegar hann hitti Sævar Helga Bragason, kallaðan Stjörnu-Sævar, fyrir tilviljun á flugvelli. „Við hittumst þarna fyrir tilviljun og Sævar segir við mig: við þurfum að ræða saman um 12. ágúst 2026. Hann fer að kynna mér málið og í kjölfarið byrjuðum við að ræða við sveitarfélögin á svæðinu,“ segir Sölvi. Í fyrra urðu svo til starfshópar með þeim sveitarfélögum sem eru á almyrkvaslóð til að ræða hvernig hægt væri að undirbúa sig. „Við vissum ekkert alveg hvernig ætti að tækla svona enda hefur þetta aldrei gerst hér áður. Við förum að bera saman bækur og skoða dæmi að utan þar sem svona hefur gerst. Við komumst að því að sveitarfélögin þurfi að huga að þremur meginþáttum: annars vegar að vera með safnstaði, þar sem er tekið á móti fólki og það er þessi innviðahluti, hins vegar er það svo upplýsingagjöf, og það er upplýsingagjöf til íbúanna um hvar á að vera, hvernig á að haga sér og að lokum fræðsla fyrir almenning um bæði atburðinn, aðbúnað og svæðið,“ segir Sölvi og útskýrir að sveitarfélögin og markaðsstofurnar hafi unnið þétt saman að því að samræma upplýsingagjöf.

Vinnan hefur gengið vel og hafa sveitarfélögin ákveðið safnstaði í öllum þéttbýlum en þar skiptir nálægðin við þjónustu höfuðmáli. „Þar sem eru safnstaðir þurfa að vera salerni, það er frábært ef það er stutt í heilbrigðisþjónustu og veitingar og verslun og því verða þéttbýlin fyrir valinu.“

Látrabjarg.

Sést í tvær mínútur víða

„Spjótin hafa beinst að Látrabjargi í umræðunni og ástæðan fyrir því er að þar er myrkvinn lengstur á landi, í tvær mínútur og þrettán sekúndur, en hann er í tvær mínútur mjög víða. Hann er til dæmis í tvær mínútur og tíu sekúndur í Breiðuvík, tæpar tvær mínútur á Suðureyri og er heilar tvær mínútur á Patreksfirði þar sem er náttúrlega hellings þjónusta og góð aðstaða, þannig að þetta er aðeins spurning um nokkrar sekúndur,“ segir Sölvi. Fundað var sérstaklega út af Látrabjargi með lögreglu, Heilbrigðisstofnun, Vegagerðinni, Náttúruverndarstofnun, sem fer fyrir svæðinu, og landeigendum þar í kring. „Staðan er náttúrlega sú að vegurinn er ekki frábær, þetta er malarvegur og um hann verður umferðarstýring þar sem álagið verður að öllum líkindum mikið. Þetta er gert til að passa að rými sé fyrir viðbragð að keyra um ef þörf er á. Við erum með þennan auka viðbúnað til að reyna að tryggja góða upplifun.“

Sölvi útskýrir að það séu ekki mörg bílastæði við Látrabjarg en í Breiðavík verði aðstaða til að leggja. „Við hvetjum fólk sem er að fara vestur að kíkja í Breiðavík og mælum til dæmis með að njóta þess að horfa á myrkvann þar. Breiðavík er fallegur staður með hvítri sandfjöru og mjög góðu útsýni í átt að sólu.“

Aðspurður hvar hann mæli með að fylgjast með almyrkvanum fyrir vestan segir Sölvi að hann vilji fyrst og fremst dreifa álaginu svo allir geti notið þess að upplifa atburðinn.

„Ég vil að upplifun allra gesta og íbúa sé sem best. Ég vil að fólk upplifi þetta í sátt og á öruggan máta, maður þarf ekki að vera að eltast við tvær eða þrjár eða þrettán sekúndur til að njóta. Ég ætla til dæmis að horfa á þetta heima hjá mér og þar verður þetta svona ein mínúta og þrjátíu og fimm sekúndur. Ég læt mér það duga og ætla að hafa það gott í garðinum heima.“

Búist við miklum fjölda

Það er ómögulegt að vita hversu margir ferðamenn stefna vestur en búist er við miklum fjölda. „Ég geri ráð fyrir að það verði um 73.000 erlendir ferðamenn á landinu öllu á deginum sjálfum þó við vitum ekki hverjir leggja leið sína vestur. Stóri óvissuþátturinn er í raun og veru hvernig íslenski ferðamaðurinn hagar sér, hverjir munu ferðast hingað og hvenær og hvernig,“ segir Sölvi. „Ég taldi að það verða 40 skip hérna fyrir utan Ísland á deginum og það verða fimm skip í höfninni á Ísafirði þennan dag en þau ætla svo að sigla í átt að almyrkvaslóð klukkan eitt,“ segir Sölvi. Landhelgisgæslan verður þar að auki með skip utan við Patreksfjörð til að tryggja öryggi. Eins og áður hefur komið fram er verið að bæta fjarskiptasamband á svæðinu. „Það er verið að bæta sambandið á þessum svæðum með tímabundnum sendum því það þarf að tryggja að fólk nái í neyðarþjónustur ef þess þarf. Tengingin verður ekki til að hanga á Facebook eða Instagram live heldur til að tryggja öryggi.“

Mikilvæg skilaboð til ferðalanga

„Ein skilaboð til þeirra sem ætla að ferðast á almyrkvaslóð eru að það er mjög mikilvægt að fólk undirbúi sig vel og mæti tímanlega. Það er enn þá betra ef fólk getur verið komið degi fyrir og sé búið að koma sér fyrir á Vestfjörðum. Það er auðvitað ekki hægt að tjalda á Látrabjargi, það má ekki og svæðið verður tæmt kvöldið fyrir, en það er vel hægt að mæta fyrr og vera undirbúin, fylla eldsneyti á bílinn, taka með teppi, vera með nesti og bara almennt vel í stakk búinn,“ segir Sölvi sem leggur áherslu á að það sé mikilvægt að njóta.

„Annað sem er mikilvægt er að vera ekki að flýta sér þegar myrkvinn er búinn. Frekar að njóta þess að vera á svæðinu og skoða sig um. Ef þú ert á Ísafirði, njóttu þess, njóttu þess að heimsækja Tálknafjörð eða Suðureyri. Það að hinkra og vera lengur kemur í veg fyrir að þetta verði svokölluð þjóðvegahátíð, það eru minni líkur á umferðartöfum ef fólk fer ekki allt heim á sama tíma. Við viljum að upplifunin verði ánægjuleg allan tímann þannig að við mælum með að gera ferð úr þessu ef fólk er að koma vestur á annað borð.“

Verður alltaf mögnuð upplifun

„Hin stóra spurningin er: hvað ef það verður skýjað? Svo ég vitni beint í Sævar Helga, jafnvel ef það verður skýjað þá verður þetta magnað,“ segir Sölvi. „Það þarf ekki að vera alveg heiðskírt til að upplifa almyrkvann, ef það er háskýjað sérðu yfirleitt í sólina og munt sjá muninn. Ef það verður alskýjað þá verður þetta skrýtnasta og stysta nóttin sem þú munt upplifa á ævinni. Þetta verður einstök, gullfalleg og ógleymanleg upplifun, sama hvernig viðrar.“ Að sögn Sölva þarf ekki að eltast við alveg heiðskíran himin því að það verði áþreifanleg breyting í umhverfinu. „Það snöggkólnar allt, litirnir breytast og það er eitthvað sem breytist í umhverfinu. Það er ekki að örvænta, þetta verður merkilegur atburður þó að það sé ský á himni.“

Sölvi minnir á mikilvægi þess að nota vottuð sólmyrkvagleraugu til þess að fylgjast með almyrkvanum en þau má til dæmis nálgast á vefsíðunni solmyrkvagleraugu. is. „Sveitarfélögin hér hafa keypt gleraugu fyrir alla íbúa á svæðinu því það er mikilvægt að nota vottuð gleraugu fyrir augnheilsuna. Þessi heimatilbúnu trikk eru ekki örugg og það er mikilvægt að skadda ekki augun á meðan maður reynir að njóta þessa merkilega atburðar.“

Ekki fara neitt, almyrkvinn kemur heim til þín

„Það er svo fallegt við þennan atburð að 70% þjóðarinnar býr á almyrkvaslóð svo flestir á landinu geta upplifað þetta heima hjá sér. Þetta er náttúrlega einstakur atburður og eitthvað sem gerist aðeins einu sinni á lífsleiðinni,“ segir Sölvi. „Þetta er eitthvað sem öll þjóðin getur horft á og er almyrkvinn á flestum stöðum í mínútu eða lengur. Allt Vestur- og Suðvesturlandið getur séð almyrkvann og fyrir norðan og austan verður hægt að sjá deildarmyrkvann, en tunglið fer í 98% deildarmyrkva á Akureyri. Það eru einstök forréttindi að fá að upplifa almyrkva á sólu heiman frá sér. Þótt sólmyrkvar verði reglulega einhvers staðar í heiminum líða að jafnaði 400 ár þar til almyrkvi verður aftur sjáanlegur frá sama stað.“

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðum markaðsstofa sveitarfélaganna, vef Ísland.is og vefsíðu Sævars Helga.

Skylt efni: Vestfirðir | Sólmyrkvi

Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega
Fréttir 5. ágúst 2026

Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega

Sauðfjárslátrun hjá SS á Selfossi hefst formlega 8. september í haust og stendur...

Vinningspeysan „Í Uppsveitum“
Fréttir 5. ágúst 2026

Vinningspeysan „Í Uppsveitum“

Á dögunum fór fram hönnunarsamkeppni um lopapeysu kvenbóndans en árið 2026 er, s...

Samráðshópur um lífrænan úrgang
Fréttir 5. ágúst 2026

Samráðshópur um lífrænan úrgang

Umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra hefur skipað starfshóp um meðhöndlun lí...

Viðbúnaður við almyrkva á sólu
Fréttir 5. ágúst 2026

Viðbúnaður við almyrkva á sólu

Undirbúningur í tengslum við almyrkva á sólu þann 12. ágúst næstkomandi er mikil...

Dagur íslenska fjárhundsins
Fréttir 5. ágúst 2026

Dagur íslenska fjárhundsins

Laugardaginn 18. júlí verður haldið upp á dag íslenska fjárhundsins úti um allt ...

Raforkukostnaður lækkar í dreifbýli
Fréttir 5. ágúst 2026

Raforkukostnaður lækkar í dreifbýli

Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku milli dreifbýlis og þéttbýlis eykst úr rú...

Vörustreymi frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela
Fréttir 4. ágúst 2026

Vörustreymi frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela

Ný skýrsla sem unnin var á fjögurra ára tímabili sýnir fram á kerfi sem liggur a...

Landbótaáætlanir uppfærðar
Fréttir 4. ágúst 2026

Landbótaáætlanir uppfærðar

Land og skógur vinnur nú að innleiðingu reglugerðar um sjálfbæra landnýtingu.