Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er staðsettur á Sauðárkróki.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er staðsettur á Sauðárkróki.
Mynd / Wikipedia
Fréttir 22. júní 2026

Verknámshúsið stækkað

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Mikil ánægja er í Skagafirði þessa dagana því nýlega skrifuðu Inga Sæland mennta- og barna- málaráðherra, Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar og Selma Barðdal Reynisdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, undir vilja- yfirlýsingu um stækkun verknámshúss skólans.

Selma Barðdal Reynisdóttir, skólameistari F.N.V.

Í dag eru nemendur skólans um 800 og hefur áhugi á verknámi alltaf verið mikill í skólanum. „Við erum himinlifandi að hafa undirritað viljayfirlýsingu um viðbygginguna. Það er ansi þröngt hjá okkur og hefur verið mjög lengi. Í verknámshúsinu kennum við rafvirkjun, húsasmíði, vélvirkjun og vélstjórn. Við kennum rafvirkjun í gámi og inni á gangi í bóknámshúsinu og í mjög litlu og þröngu rými í núverandi verknámshúsi. Of lítið pláss er almennt í kringum allar vélar og við getum ekki boðið nemendum og kennurum upp á eðlilegar vinnuaðstæður. Við höfum einnig verið að kenna bifvélavirkjun en kennslan fer að miklu leyti fram í húsnæði Bifreiðaverkstæðis KS út af plássleysi,“ segir Selma skólameistari.

Selma segir að í hönnuninni sé gert ráð fyrir fjölnotarými sem á að nota í ýmislegt, t.d. kennslu í bifvélavirkjun og jafnvel múrverki og pípulögnum. Kvikmyndagerðarbraut skólans vantar líka töluvert meira pláss.

„Það er mikill áhugi á okkar upptökusvæði og víðar á verknámi, en svo hefur verið stöðug aðsókn fólks alls staðar af á landinu í helgarnám í iðngreinum,“ segir Selma aðspurð um áhuga á verknámi við skólann. Hönnun á fyrsta áfanga lýkur á haustdögum og stefnt er á flutning í þann hluta ári síðar.

„Við erum ákaflega þakklát, bæði Sveitarfélaginu Skagafirði sem tekur að sér að halda utan um verkefnið fyrir sveitarfélög á Norðurlandi vestra í samræmi við lagaheimildir og mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir að treysta okkur fyrir þessu. Það er ekki sjálfgefið að eiga jafn styrkan bakhjarl og sveitarfélagið er en við trúum því að með þessu móti getum við lokið framkvæmdum hraðar og ódýrar en ella,“ segir Selma.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...