Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Hinn magnaði hrútur Askur sem var valinn besti kynbótahrútur landsins á síðasta ári.
Hinn magnaði hrútur Askur sem var valinn besti kynbótahrútur landsins á síðasta ári.
Mynd / Aðsend
Fréttir 19. maí 2026

Verðlaunuð fyrir kynbótahrút

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fanney Ólöf Lárusdóttir og Sverrir Gíslason á bænum Kirkjubæjarklaustri II fengu á fagþingi í sauðfjárrækt sem haldið var á Laugarbakka í Miðfirði 11. apríl síðastliðinn viðurkenningu frá sauðfjársæðingastöðvunum fyrir að hafa ræktað best reynda kynbótahrútinn 2025, Ask 19-884.

Fanney Ólöf og Sverrir hafa náð langt í ræktun sinni. Þau eru með 420 fjár og 7 hesta. Þau eru að sjálfsögðu mjög stolt af verðlaununum og eru þau mikill heiður fyrir það ræktunarstarf, sem hefur verið stundað í gegnum árin á búinu.

Pabbinn var lagðprúður og föngulegur hrútur 

Þegar Fanney Ólöf er spurð út í Ask og beðin að lýsa honum stendur ekki á svarinu. „Hann er fæddur á okkar búi árið 2019 en Askur er undan heimahrútnum Óðni 17520, sem reyndist gríðarlega vel á okkar búi, bæði sem lambafaðir og ærfaðir. Óðinn var gemsalamb og vakti athygli okkar lambsárið þar sem hann var gríðarlega fallegur á velli. lagðprúður og föngulegur. Aski svipar mjög til hans nema að Askur var grár en Óðinn hvítur,“ segir Fanney og bætir við: „Askur var notaður á okkar búi 2020 og 2021 og kom vel út bæði árin. Við settum ekki mikið á undan honum fyrra árið því hann er, jú, grár og við vildum ekki fara að setja á fjölda af gráum ám. Seinna árið hans settum við aftur á móti á 13 ær og einn hrút. Um þriðjungur af þeim var grár og ein svartgolótt. Hann er svo fenginn í afkvæmarannsókn fyrir sæðingastöðvarnar haustið 2021 að Borgarfelli í Skaftártungu. Þar kom hann mjög vel út og var þá valinn á sæðingastöðvarnar haustið 2022 og var þar tvö ár. Hann átti því afkvæmi um allt land haustin 2023 og 2024.“

80 lambhrútar

Það hafa verið settir á undan Aski um 80 lambhrútar og er um helmingur þeirra enn á lífi. Afurðaárið 2025 voru til um 300 dætur hans. Þær eru afar frjósamar og er kynbótamat hans fyrir frjósemi 115 stig. Dætur hans hafa farið vel af stað og stendur kynbótamat hans fyrir mjólkurlagni í 108 stigum og fyrir fallþunga mæðra áhrif í 112 stigum.

Hinn fullkomni hrútur

Þegar Fanney Ólöf er spurð út í mikilvægi hrúta í sauðfjárræktinni segir hún að alltaf sé verið að leitast við að rækta hinn fullkomna hrút, þ.e. hrút sem sameinar alla góða kosti. „Það er að vera góður lambafaðir, gefa bráðþroska lömb og vel gerð. Einnig er alltaf markmiðið að rækta hrúta sem eru líklegir til að vera góðir ærfeður, þ.e. að dætur þeirra séu frjósamar og mjólkurlagnar.

Við höfum alla tíð notað sæðingar mikið og er þá alltaf gott þegar uppáhaldsafurðaærnar eru að ganga á sæðingum og þá eru þær sæddar með einhverjum af ,,bestu“ hrútum landsins. Með þessu móti hefur okkur tekist að rækta góða gripi sem hafa skilað okkur t.d. Aski og fleiri góðum hrútum sem hafa nýst vel í ræktunarstarfinu,“ segir Fanney Ólöf. 700 lömb í vor Sverrir og Fanney Ólöf eiga von á um 700 lömbum í vor og þau reikna með að búskapurinn verði með svipuðu sniði næstu árin. „Okkur langar í lokin að þakka fyrir þessa viðurkenningu vegna Asks. Það er mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut og reyna að standa sig enn betur í ræktunarstarfinu,“ segir Fanney Ólöf.

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...