Frú Jackie Kennedy var þekkt fyrir dálæti sitt á bleikri Chaneldragt úr tweedefni.
Frú Jackie Kennedy var þekkt fyrir dálæti sitt á bleikri Chaneldragt úr tweedefni.
Líf og starf 26. ágúst 2026

Vaðmál og voðir

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Bör Börsson, söguhetja samnefndrar skáldsögu sem flutt var í Ríkisútvarpinu árin 1944–1945 þekkja margir - og þeir sem kannast ekki við nafnið ættu snarlega að bæta úr því. Rithöfundurinn norski, Johan Falkberget, gerði Bör ódauðlegan með skrifum sínum og sem dæmi um það voru allar götur auðar hérlendis þegar sagan ómaði á öldum ljósvakans.

Nú velta einhverjir fyrir sér hvers vegna þessi nýríka, hégómlega og örlítið vitgranna persóna er mætt í tískudálk Bændablaðsins, en það er akkúrat vegna þess að hann Bör fylgdi ævinlega nýjustu tísku og hafði í hávegum þann munað að vera sem smartastur. Sagan kom út á Norðurlöndum í upphafi síðustu aldar, 1920, þegar einmitt vaðmál, þykkt, ofið og þæft ullarefni þótti hæst móðins.

Ef gripið er niður í bókina má lesa lýsingar Johans á tilfæringum Börs, þegar hann fyrst makar sápu í hárið á sér til þess að fá á sig „kaupstaðarlykt“ og treður sér í nýju vaðmálsfötin til að heilla Jósefínu, tilvonandi eiginkonu sína. Vaðmálsföt sem slík voru þarna einkennisklæðnaður hinna ríku, en bæði þétt og óþjál, Bör flækir sig í nýju fötunum en nær sveittur og móður að láta Jósefínu dást að sér.

Frekari tískulýsingar má finna í bókunum um Bör sem tók upp léttari klæðnað áður en hann hóf að klæðast vaðmáli að nýju.

Á því síðara tímabili aðhylltist hann svokölluðum „þjóðernisstíl“ og áleit smartast að vera sem alþýðulegastur, dressaður í ull og skinn.

Chaneldragtin margfræga.

Tweed-bylting Chanel

Þegar horft er til annarra sem einnig fylgja hátískunni liggur rík saga þessa náttúrulega gæðahráefnis enda hafa ullarflíkur þeirra oftar en ekki öðlast tímalausa stöðu í fataskápum um allan heim.

Saga Chanel er órjúfanlega tengd ullinni. Til að mynda var Coco Chanel sú sem á þriðja áratug síðustu aldar gjörbylti kvenfatnaði með því að kynna tweed-efnið til sögunnar - þá í hinni klassísku dragt. Tweed er gróft, frekar þéttofið ullarefni, oft með síldarbeinsmynstri og á rætur sínar að rekja til skosku hálandanna. Tweed-efnið var á þeim tíma fyrst og fremst notað í herrafatnað, en Coco Chanel heillaðist af mýkt og hagnýti þess enda hlýtt og skjólgott efni sem veitti hreyfifrelsi án þess að krumpast. Segir sagan reyndar að Coco hafi kynnst tweed-efninu vegna ástarsambands síns við hertogann af Westminister og kolfallið fyrir því - auk þess að taka fyrstu skref framleiðslu þess í samvinnu við skoska vefara þar sem hún lét lita efnið að eigin geðþótta. Í framhaldinu hóf hún samstarf við nú elstu handverksstofu Parísar, Maison Lesage, þar sem blönduð voru efni á borð við silki, ull og bómull í tweed-efnið til að gera það léttara og meðfærilegra. Samstarfið heldur enn þann dag í dag og ullardragtin margfræga frá Chanel, sem var kynnt til sögunnar fyrir um hundrað árum, þykir enn hámóðins – enda gott dæmi um tímalausan hágæða fatnað.

Bar-jakki Dior.

Svokallaður „Bar Jacket“ fatahönnuðarins Christians Dior er önnur tímalaus flík sem má nefna ef farið er yfir hágæða tímalausan fatnað. Árið 1947 kynnti hönnuðurinn hina frægu „New Look“ línu sína, sem reyndar hlaut nafnið vegna Carmel Snow, þá ritstjóra tískuritsins Harper‘s Bazaar, sem var alveg dolfallin og hrópaði upp yfir sig á sýningu. „Kæri Christian, kjólarnir þínir hafa svo einstaklega nýtt útlit!“

Jæja, „New Look“-línan bauð semsé bæði upp á dramatískar og kvenlegar línur, en Dior notaði hreina og óblandaða lambsull í hinn vel þekkta mittisjakka. Slík ull er klippt af lambi við fyrstu rúningu og þekkt fyrir að vera mun mýkri og léttari en hefðbundin ull af fullorðnu fé.

Í dag heldur tískuhúsið áfram að hafa ull í hávegum, til að mynda í hinu einkennandi Dior Oblique-mynstri og einnig houndstooth-mynstrinu sem sjá má hér á myndum.

Fjárfesting til frambúðar

Fyrir neytendur í dag snýst val á ullarfatnaði frá þessum merkjum því ekki eingöngu um stöðutákn, heldur um meðvitund gagnvart sjálfbærni og gæðum.

Ullarfatnaður frá Chanel, Dior og sambærilegum merkjum er skýrt dæmi um það sem kallað er „hæg tíska“ (slow fashion) innan lúxusgeirans. Á tímum hraðtísku og gerviefna standa þessi handunnu ullarverk sem minnisvarði um handverk og virðingu fyrir náttúrulegum auðlindum sem geta enst kynslóða á milli ef rétt er farið með.  

Skylt efni: tíska

Lokanir vegna viðhaldsvinnu
Fréttir 26. ágúst 2026

Lokanir vegna viðhaldsvinnu

Núna er unnið að viðgerðum á brúni sem liggur yfir Jökulsá á Fjöllum við Hringve...

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...