Úrræðin eru heima á bæ
Leiðari 22. október 2026

Úrræðin eru heima á bæ

Höfundur: Þröstur Helgason

Nýsköpun í landbúnaði þarf ekki alltaf að felast í stórum tæknistökkum eða nýjum búgreinum. Stundum felst hún einfaldlega í því að horfa öðrum augum á það sem fyrir er, nýta betur eigin auðlindir og finna leiðir til að tengja framleiðandann betur við neytandann.

Þrjár sögur í Bændablaðinu að þessu sinni eru ágætt dæmi um það.

Í Reykjahlíð á Skeiðum hafa Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Boehme valið sér skýra sérstöðu í uxaeldi. Þau leggja áherslu á heimafengið fóður, nota hvorki eitur- né varnarefni við fóðuröflun og hafa fundið leiðir til að koma kjötinu sérmerktu til neytenda. Fyrst seldu þau beint frá býli en þegar eftirspurnin jókst varð sú leið tímafrek. Nú fer salan meðal annars í gegnum Matland og Sólskinsbúðina á Flúðum.

Þarna fara saman hugmyndir um ræktun, búfjárhald og markaðssetningu. Uxarnir eru lengi úti, fá að mestu gras og hey eftir sex mánaða aldur og fyrir slátrun meðal annars heimaræktað bygg. Þótt uxarnir vaxi hægar og fallþunginn sé minni en hjá nautum segja bændurnir útiveruna hjálpa til við að halda eldiskostnaði niðri.

Í Bæjarsveit í Borgarfirði hefur Jón Björn Blöndal farið aðra leið. Þar kemur neytandinn sjálfur út á akur og sækir matinn. Sjálftínsla grænmetis, sem hófst í smærri stíl, hefur vaxið hratt. Um 300 manns skráðu sig á fimm sjálftínsluviðburði í ár og á einum þeirra voru 140 skráðir en Jón Björn áætlar að alls hafi 300 til 400 manns komið þann dag.

Hugmyndin snýst ekki aðeins um að selja grænmeti milliliðalaust. Sjálftínslan hefur orðið að fjölskylduafþreyingu og á sama tíma leið fyrir börn til að kynnast uppruna matvæla. Jón Björn sér jafnframt tækifæri í því að láta grænmetis- og kornrækt styðja hvor aðra með sáðskiptum og byggja fleiri stoðir undir búreksturinn.

Á Lýsuhóli á Snæfellsnesi birtist enn ein hlið nýsköpunarinnar. Þar hafa Jóhanna Ásgeirsdóttir og Agnar Gestsson sett 340 sólarsellur á þak reiðhallarinnar. Tilefnið var meðal annars hár rafmagnskostnaður í rekstri sem nær bæði til hrossahalds og ferðaþjónustu. Fjárfestingin er áætluð um 30 milljónir króna og gert er ráð fyrir að hún borgi sig upp á sex til sjö árum.

Sameiginlegi þráðurinn er sterkur. Á þessum þremur bæjum er ekki beðið eftir því að tækifærin komi af sjálfu sér. Þau eru búin til.

Það er kannski einmitt ein mikilvægasta auðlind íslensks landbúnaðar: úrræðagóðir bændur sem þekkja landið sitt, reksturinn og framleiðsluna og eru óhræddir við að prófa nýjar leiðir. Í því felast fjölmörg tækifæri.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...