Það var mikill erill í Smáralindinni á dögunum þegar vörumessa Ungra frumkvöðla var haldin. Um var að ræða lokaverkefni mennntaskólanemenda þar sem kynnt voru um 150 nýsköpunarfyrirtæki.
Í kjölfar keppninnar, þann 28. apríl fór fram verðlaunahátíð og segir Petra Bragadóttir framkvæmdastjóri alls hafa verið veitt 13 verðlaun, erfitt val enda mikið til af efnilegum ungum hugsuðum. Fyrsta sæti, Fyrirtæki ársins, hrepptu nemendur frá Verslunarskóla Íslands fyrir hugmynd sína sem gengur út á það að vita hvar staðsetningar þekktra staða eru á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila, segir Petra. Verslingar keppa því fyrir hönd Íslands á GENE 2026, stærstu nýsköpunarkeppni Evrópu, sem fer fram í Riga, Lettlandi 7.–10. júlí nk.
Hér eru nokkur þeirra sem kynntu vörur sínar í Smáralindinni, öll ótrúlega flott og hæfileikarík, en áhugasamir geta kíkt á TikTok eða Instagram þar sem flestir hafa gert sér síðu.
VINNINGSHAFARNIR Petra Bragadóttir, framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla/JA Iceland ásamt vinnings- höfum keppninnar, þeim Petru Björk Valdimarsdóttur, Thelmu Kristbjörgu Bæringsdóttur, Heru Björt Aðalsteinsdóttur, Tinnu Björgu Jóhannsdóttur, Hönnu Falksdóttur Krüger og Þóru Hrólfsdóttur, kennara í Verzlunarskóla Íslands. Mynd / Kristinn Magnússon.HAFBIT Framleiðir fiskiroðsnakk úr þorskroði. „Spicy og hvítlauks! Stökkt og bragðgott með löggildri innihaldslýsingu frá MATÍS,“ segir Deimantas Zelvys, sem bendir ánægður á að í 25 grömmum af snakki sé hvorki meira né minna en 21 gramm af próteini. „Við leggjum líka mikla áherslu á ferskt hráefni. Á þriðjudegi syndir f iskurinn í sjónum, á föstudegi er hann kominn í pakkningar,“ segir hann. Hópurinn gengur sjálfur í allt sem viðkemur framleiðslunni, hvort sem er að þrífa þorskroðið, krydda, ganga frá pakkningunum og hreinlega allt þar inn á milli. Vinnutíminn hefur verið langur og strangur, en vel þess virði, segja þau Guðrún Rós Bjarnadóttir, Deimantas Zelvs, Sigfús Ísarr Þórðarson og Vilhelm Ari Hólmarsson með bros á vör. Vídeó af verkferli og upplýsingar má m.a. sjá á TikTok síðu-hópsins undir nafninu HafBit og h4fbit á Instagram. Nú eftir verðlaunaafhendingu kom í ljós að þau hlutu verðlaun sem Besti sjó-bissnessinn!BLÆR Í síðasta tölublaði kynntust lesendur stúlkunum á bak við góðgerladrykkinn Blæ, þeim Hafdísi, Teklu, Rebekku og Sólnýju, en hér standa þær þrjár fyrstnefndu við auðan sölubás sinn því drykkurinn rann út á methraða og færri gátu verslað en vildu. Möguleiki er þó á að panta hann á samfélagsmiðlum stúlknanna sem segjast vongóðar um áframhaldandi samstarf við Ölgerðina, enda fer drykkurinn einstaklega vel í maga. Endilega kíkið á Blaer.heilsudrykkur á TikTok og Instagram-síðum stelpnanna. Nú eftir verðlaunaafhendingu kom í ljós að þær hlutu verðlaun fyrir öflugasta sölustarfið!UGGI eru snyrtitöskur unnar úr endurnýttu fiskineti, hannaðar af þeim Þekktu landið! Um ræðir fræðandi og skemmtilegt borðspil VORTILBOÐ 2026 sínar í Smáralindinni, öll ótrúlega flott og hæfileikarík, en áhugasamir geta kíkt á TikTok eða Instagram þar sem flestir hafa gert sér síðu. /sp VANTAR ÞIG PLÁSS? Það er gott að eiga stað fyrir sláttuvélina, grillið, hrífuna og dekkin... EYRI - 15 fm Dagbjörtu Höskuldsdóttur, Andreu Hrönn Harðardóttur og Margréti Ástu Björnsdóttur. Stelpurnar höfðu vitneskju um hve mikil sóun verður af afgangs f isknetum og fannst upplagt að hanna úr þeim endingargóða snyrtitösku, eftir að hafa fengið vilyrði fyrir netum frá Hampiðjunni. Þær leggja mikla áherslu á gæði og fagmennsku í öllu sínu og fengu því saumastofuna Saumsprettuna til að sauma fyrir sig töskurnar. Með áframhaldandi sjálfbærni og umhverfissjónarmið í huga heyrðu þær í fyrirtækinu Málmtækni – sem er leiðandi í málmiðnaði – og fengu þar efni í merkin á töskunum. „Merkin okkar eru unnin úr ryðfríu stáli sem fellur til við framleiðslu utanhússklæðninga hjá Málmtækni og svo laserskorin í Mikra. Stálið táknar styrk og er lykilatriði taskanna okkar,“ segja stelpurnar, en frekari upplýsingar um þær má finna á Uggi_toskur á tiktok og Instagram.HUMAN KIBBLE „Við stundum ræktina bæði mjög mikið en erum að sama skapi mjög upptekin og í stað þess að vera að meal-preppa þá kemur próteinmorgunkornið Human kibble í staðinn. Þetta er morgunkorn með 50 g af próteini, um 300 kaloríur í skammti og 1,5 gramm af f itu í 100 g. Það inniheldur kaisin prótein sem er tegund af mjólkurpróteini ásamt mysu, eggjahvítuduft, kakó og kanilduft, stevía, smá salt og enginn viðbættur sykur,“ segja þau Adam Sami Naili og Margrét Ösp Árnadóttir sem eiga greinilega framtíðina fyrir sér á þessari braut. Pakkningarnar vekja athygli, stílhrein og sterk hönnun og innihaldið greinilega gæðavara, ef dæma má lýsingarnar. Áhugasamir geta leitað að Fenrirfromhel á tiktok og Instagram