Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Undirskriftasöfnun til bjargar Gróðrastöðinni Mörk
Mynd / Úr safni
Fréttir 6. maí 2026

Undirskriftasöfnun til bjargar Gróðrastöðinni Mörk

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir
Guðmundur Vernharðsson, garðyrkjufræðingur og eigandi Gróðrastöðvarinnar Markar.

Settur hefur verið í loftið undirskriftalisti til stuðnings Gróðrastöðinni Mörk og skorað á Reykjavíkurborg að falla frá áformum sínum um að hrekja fyrirtækið úr Stjörnugrófinni. 

Þar segir jafnframt: „Í þeirri stefnu sem sett hefur verið í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu er sérstakt að það eigi að hvetja borgarbúa til að keyra yfir 100 kílómetra í gróðrarstöð til að kaupa trjágróður, fjölæringa og sumarblóm til að fegra og bæta umhverfi sitt á höfuðborgarsvæðinu.“

Í síðasta tölublaði Bændablaðsins var viðtal við Guðmund Verharðsson, garðyrkjufræðing og eiganda Markar, þar sem hann sagði að ákvörðun sem tekin var árið 2008, án samráðs, geti nú leitt til lokunar fyrirtækisins. 

Gróðrastöðin Mörk hefur starfað í Fossvogsdalnum í nær sex áratugi, eða frá árinu 1967. Leigusamningur fyrirtækisins um lóðina sem það stendur á féll úr gildi árið 2016 og þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hefur hann ekki verið framlengdr. Framtíð fyrirtækisins er nú í uppnámi vegna áforma um að stækka athafnasvæði knattspyrnufélagsins Víkings. „Eins og þetta blasir við okkur er verið að leggja niður gróðrarstöð fyrir bílastæði fyrir Víking,“ sagði Guðmundur í viðtali við Bændablaðið.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...