Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Fulltrúar Humble sem tóku við Kuðungnum úr hendi Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Fulltrúar Humble sem tóku við Kuðungnum úr hendi Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Mynd / Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Fréttir 19. maí 2026

Umhverfisviðurkenning veitt fyrir framúrskarandi störf

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Fyrirtækin Humble og Krónan hlutu á dögunum Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári.

Þá voru nemendur 10. bekkjar Brekkubæjarskóla á Akranesi útnefndir Varðliðar umhverfisins.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, afhendir fulltrúum Krónunnar Kuðunginn.

Humble hjálpar fyrirtækjum að umbreyta þeim vörum sem ekki seljast fullu verði í verslunum í söluvörur og þannig verðmæti í gegnum smáforrit sitt. Með þeirri leið er dregið úr sóun og nýting birgða bætt. Segir í úrskurði dómnefndar að Humble hafi með eftirtektarverðum hætti dregið úr matarsóun á Íslandi.

Í umsögn dómnefndar um Krónuna sagði að sá metnaður sé lofsverður sem hún hefði sýnt með stuðningi við nýjar og skapandi leiðir til þess að draga úr myndun úrgangs síðastliðinn áratug.

Nemendur í 10. bekk Brekkubæjarskóla á Akranesi fengu útnefningu sína fyrir verkefnið og viðburðinn Fræðslusmakk. Í verkefninu köfuðu nemendur ofan í fjölbreytt viðfangsefni loftslags- og umhverfismála, sem kynnt voru skólasamfélaginu, fjölskyldum og gestum og gangandi á sérstökum loftslagsviðburði í skólanum.

Nemendur 10. bekkjar Brekkubæjarskóla á Akranesi.

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f