Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Sviss hefur aukið samstarf sitt við Evrópusambandið, en landið stendur utan þess. Myndin er tekin í svissnesku þorpi árið 2020.
Sviss hefur aukið samstarf sitt við Evrópusambandið, en landið stendur utan þess. Myndin er tekin í svissnesku þorpi árið 2020.
Mynd / Leo Visions
Utan úr heimi 19. mars 2026

Tvíhliða samningar Sviss og ESB

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í byrjun mánaðar skrifuðu Ursula Von Der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) og Guy Parmelin, forseti Sviss, undir tvíhliða samning sem miðar að auknu samstarfi Sviss og ESB.

Í viðræðum náðist samkomulag um uppfærslu á fjórum samningum sem þegar voru í gildi. Það eru samningur um aðgang Sviss að innri markaði ESB, samningur um samgöngur á lofti og landi, samningur um frjálst flæði fólks yfir landamæri, ásamt samningi um samræmismatskerfi.

Í nýju samningunum sameinast Sviss og ESB að auki um svokallað matvælaöryggissvæði sem nær yfir alla matvælakeðjuna. Eins var skrifað undir samning er snýr að rafmagni sem gefur Sviss aðgang að raforkuflutningskerfi Evrópu. Þar að auki náðist samkomulag um heilsu sem auðveldar viðbrögð við heilbrigðisógnum sem ná yfir landamæri. Enn fremur hefur Sviss samþykkt að leggja til fjármagn sem miðar að félagslegri samloðun innan sambandsins. Með nýju samningunum verður Sviss jafnframt aðili að Geimvísindastofnun Evrópu. Sviss er hluti af EFTA (Fríverslunarsamtökum Evrópu) en stendur fyrir utan EES (Evrópska efnahagssvæðið) og ESB.

Skylt efni: utan úr heimi

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...