Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Stefanía Sigurbjörnsdóttir, ásamt Jónu Árný og Ragnari Sigurðssyni, bæjarfulltrúi, þegar hún fékk blómin sín.
Stefanía Sigurbjörnsdóttir, ásamt Jónu Árný og Ragnari Sigurðssyni, bæjarfulltrúi, þegar hún fékk blómin sín.
Mynd / Aðsend
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Jóna Árný, bæjarstjóri og Auður Bjarnadóttir, sem fæddist á Norðfirði 25. júní 1926.

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í sveitarfélaginu, sem eiga það sameiginlegt að hafa orðið 100 ára á árinu. Þetta eru þær Stefanía Sigurbjörnsdóttir á Eskifirði og Auður Bjarnadóttir frá Norðfirði.

Báðar eru þær hressar miðað við aldur og fyrri störf en þess má geta að Auður hefur búið alla sína ævi á Norðfirði á meðan Stefanía hefur búið á nokkrum stöðum en hún fæddist 22. febrúar 1926 í Stöð á Stöðvarfirði. Auður fæddist á Norðfirði 25. júní 1926.

„Það var einstaklega ánægjulegt að fá að heimsækja þessar tvær heiðurskonur, færa þeim blóm og eiga með þeim góða stund. Fyrir mig var sérstaklega dýrmætt að rifja upp gamla tíma með Auði úr sveitinni þegar ég var barn og heyra Stefaníu segja frá sinni löngu sögu á Eskifirði. Það var síðan sannarlega innblástur að vera nýbúin að ræða við þessa aldursforseta Fjarðabyggðar þegar við héldum upp á kvenréttindadaginn daginn eftir en heimsóknirnar fóru fram 18. júní,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri. Í dag búa 5.453 íbúar í Fjarðabyggð. Þriðji elsti íbúinn er 98 ára.

Skylt efni: 100 ára | fjarðabyggð

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...