Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Trump hefur sætt vaxandi gagnrýni eftir að hann kynnti áform um að auka innflutning nautakjöts til Bandaríkjanna í því skyni að lækka verð til neytenda.
Trump hefur sætt vaxandi gagnrýni eftir að hann kynnti áform um að auka innflutning nautakjöts til Bandaríkjanna í því skyni að lækka verð til neytenda.
Utan úr heimi 16. september 2026

Trump vill auðvelda bændum að vinna eigið kjöt

Höfundur: Þröstur Helgason

Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst veita nautgriparæktendum og bændum aukin réttindi til að vinna úr eigin afurðum. Tillagan kemur í kjölfar harðrar gagnrýni frá bandarískum bændum og stjórnmálamönnum á ákvörðun forsetans um að heimila tímabundið innflutning á allt að 300 þúsund tonnum af erlendu nautakjöti án hærri tolla.

Trump hefur sætt vaxandi gagnrýni frá fulltrúum nautgriparæktar og einnig frá flokksfélögum sínum í Repúblikanaflokknum eftir að hann kynnti áform um að auka innflutning nautakjöts til Bandaríkjanna í því skyni að lækka verð til neytenda. Gagnrýnendur telja að aukinn innflutningur geti grafið undan afkomu innlendra framleiðenda og dregið úr hvata bænda til að byggja upp nautgripastofna á ný, en gripafjöldi í Bandaríkjunum er nú sá minnsti í 75 ár. Guardian segir frá.

Í yfirlýsingu sem Trump birti á samfélagsmiðlinum Truth Social sagði hann að bændur og búalið hefðu lengi kvartað undan yfirburðastöðu stórra kjötvinnslufyrirtækja. Hann hélt því fram að aðeins fjögur fyrirtæki réðu meginhluta kjötvinnslunnar í landinu og að sú staða hefði gert bændum erfitt fyrir.

Forsetinn sagðist því hafa fyrirskipað undirbúning lagalegra aðgerða sem myndu gera bændum og búfjárræktendum kleift að „vinna sína eigin matvælaframleiðslu“. Markmiðið væri að rjúfa það sem hann kallaði einokun eða fákeppni í greininni.

Málið komst á dagskrá eftir viðtal Trumps við íhaldsútvarpsmanninn Glenn Beck sem jafnframt er nautgripabóndi. Beck hvatti forsetann til að skoða það sem hann kallaði „kjötvinnslukartel“ og lagði til að reglur yrðu rýmkaðar þannig að bændur gætu sjálfir slátrað gripum sínum og selt afurðirnar.

Brooke Rollins, landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna, hefur boðað frekari tilkynningar um málið á næstu dögum. Hún sagði mikilvægt fyrir þjóðaröryggi landsins að Bandaríkin gætu sjálf tryggt matvælaframleiðslu sína. Meðal þeirra aðgerða sem hún nefndi eru einfaldari reglur um vinnslu matvæla og auknir möguleikar bænda til að selja afurðir yfir ríkjamörk.

Óljóst er þó hversu víðtækar breytingar forsetinn getur innleitt án aðkomu Bandaríkjaþings. Strangar kröfur gilda um kjötvinnslu og opinbert eftirlit með sláturafurðum og lagafrumvarp sem myndi auðvelda smærri framleiðendum að selja kjöt beint til neytenda hefur setið fast í þinginu. Repúblikaninn Thomas Massie, sem er einn flutningsmanna þess frumvarps, fagnaði framtakinu en sagði að varanleg lausn þyrfti að byggjast á lagasetningu fremur en forsetatilskipun einni saman.

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...