Íslandsmeistarar barna- og unglingasveita TR. Frá vinstri: Haukur Víðis, Pétur Úlfar, Jónatan Leó og Jósef. Á bak við er Daði liðsstjóri.
Íslandsmeistarar barna- og unglingasveita TR. Frá vinstri: Haukur Víðis, Pétur Úlfar, Jónatan Leó og Jósef. Á bak við er Daði liðsstjóri.
Mynd / Tómas Tandri
Líf og starf 4. nóvember 2026

TR trónir á toppnum

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Taflfélagi Reykjavíkur gekk vel í þeim sveitakeppnum sem fram fóru síðustu helgar. Íslandsmót skákfélaga var um þarsíðustu helgi í húsnæði MH og vakti staðsetningin almennt mikla lukku. Mótið var haldið þar oft í gamla daga en hefur undanfarið verið í Rimaskóla. Taflfélag Reykjavíkur er á toppnum í úrvalsdeild en félagið tapaði einni viðureign en vann hinar fjórar. Í seinni hlutanum í vor verða haldnar aðrar fimm umferðir gegn sömu liðum. Skákdeild Breiðabliks hefur einu liðsstigi minna en TR, en Blikar hafa innan sinna raða bæði Vigni Vatnar, stigahæsta skákmann landsins, og Hilmi Frey, núverandi Íslandsmeistara. Baráttan við að halda sér í deildinni er á milli Taflfélags Garðabæjar og núverandi Íslandsmeistara Taflfélags Vestmannaeyja, sem stilltu upp innlendri skáksveit í ár.

Skákfélag Akureyrar er í afar sterkri stöðu í 1. deild og mikið þarf að ganga á svo félagið komist ekki upp um deild. Einnig er B sveit félagsins efst í 2. deild. Gömlu félögin SA og TR eru í 1.–2. sæti í báðum deildum og una hag sínum vel. Skákfélag Selfoss og nágrennis ásamt 64 mislyndum biskupum eru í sérflokki í 3. deild, og Haukar hafa unnið allar viðureignir sínar í 4. deild og eru afar líklegir upp um deild.

Helgina eftir Íslandsmót skákfélaga fóru fram tvö önnur Íslandsmót, á sama tíma og fjögur íslensk lið héldu til Svartfjallalands á Evrópumót taflfélaga, þar á meðal greinarhöfundur sem er lánsmaður fyrir SA. Dagskráin er ansi ströng í íslensku skáklífi þetta haustið! Á sunnudaginn tefldu félagslið á Íslandsmóti barna- og unglingasveita, en keppt var í þremur flokkum. Einum opnum og tveimur aldursskiptum, fyrir 4.–7. bekk og 1.–3. bekk. Taflfélag Reykjavíkur, sem stillti upp A-sveit helgina áður sem var mikið til skipuð skákmönnum sem eru komnir yfir miðjan aldur, stendur sig líka vel í yngri flokkum. Félagið vann opna flokkinn, og miðjuflokkinn. Jósef Ómarsson, 1. borð maður TR, hafði einnig teflt eina skák með A-sveit félagsins á Íslandsmóti skákfélaga, og unnið hana. Skákdeild KR vann yngsta flokkinn, rétt eins og í fyrra, og það verður gaman að sjá á næstu árum afrakstur starfsins þar færast upp í eldri aldursflokka.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...