Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Stærð tjaldsvæðisins í Breiðavík fer tímabundið úr hálfum hektara upp í níu hektara í kringum sólmyrkvann í ágúst.
Stærð tjaldsvæðisins í Breiðavík fer tímabundið úr hálfum hektara upp í níu hektara í kringum sólmyrkvann í ágúst.
Mynd / Breiðavík
Fréttir 4. ágúst 2026

Tjaldsvæðið í Breiðavík stækkar átjánfalt

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Eigendur Hótels Breiðavíkur ætla að gera tímabundna aðstöðu fyrir tjaldgesti á túnum til þess að geta tekið á móti miklum fjölda ferðalanga sem von er á í tengslum við sólmyrkvann þann 12. ágúst.

Í Breiðavík er sú gistiaðstaða sem er næst Látrabjargi, en þar mun almyrkvinn á sólu vara lengst á föstu landi. Við hlið hótelsins í Breiðavík er tjaldsvæði sem er hálfur hektari að stærð, en dagana í kringum sólmyrkvann mun það stækka í níu hektara, sem er átjánföld stækkun.

Ekki er tekið á móti bókunum á tjaldsvæðinu, en rekstraraðilar hafa fulla trú á því að hafa pláss fyrir alla sem vilja tjalda. Þeir sem koma fyrst fá aðgang að rafmagni og sturtum á þeim hálfa hektara þar sem þegar hefur verið byggð upp aðstaða fyrir tjaldgesti. Þeir sem slá upp tjöldum utan þess svæðis hafa eingöngu aðgang að salernum. Nóttin á tjaldsvæðinu mun kosta 8.000 krónur fyrir hvern fullorðinn einstakling. Í fjölmiðlum hefur verið greint frá því að mikið hefur verið um afbókanir á hótelinu í Breiðavík og því hugsanlegt að enn finnist svefnstaður innandyra á svæðinu.

Ferðaþjónustuaðilarnir í Breiðavík hvetja fólk til þess að mæta 10. eða 11. ágúst og fara af svæðinu einum eða tveimur dögum eftir sólmyrkvann til þess að forðast umferðaröngþveiti. Búist er við miklum mannfjölda á Látrabjargi.

Skylt efni: Sólmyrkvi

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...