Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Mynd / Aðsend
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Höfundur: Þröstur Helgason

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land allt. Markaðurinn er nú haldinn í tíunda sinn en þar verður boðið upp á ferskt og ópakkað íslenskt grænmeti sem berst reglulega frá garðyrkjubændum í verslanir.

Á síðasta markaði seldust rúmlega 145 tonn, samanborið við 30 tonn þegar markaðurinn var fyrst haldinn árið 2012. Selt magn hefur því nær fimmfaldast frá fyrsta markaði. Tvær fyrstu helgar markaðarins nú hafa 50 tonn af fersku grænmeti selst í búðum Krónunnar.

Áætlað er að markaðurinn standi í fjórar helgar, en lengd hans og vöruúrval ræðst af uppskeru og framboði frá bændum. Alls taka 20 bændur þátt í ár og verður boðið upp á yfir 30 tegundir af nýuppteknu íslensku grænmeti. Grænmetið kemur víða að, meðal annars frá Flúðum, Reykholti, Laugarás, Vík, Hveravöllum og Varmalandi.

Rigningarsamt sumar hefur gert það að verkum að nokkur seinkun er á uppskeru á útiræktuðu grænmeti en útlit er fyrir góða og mikla uppskeru sem nær hámarki á næstu vikum. Gulrætur komu seinna inn í ár heldur en í fyrra sem var eitt besta útiræktarár í manna minnum. Endanlegt úrval getur því verið breytilegt milli helga.

Auk þekktra tegunda á borð við tómata, kartöflur, kál, rófur og papriku er von á rauðu grænkáli frá Umrót, garðyrkjustöð Sigrúnar á Flúðum. Grænkál er einstaklega hollt og hefur notið sívaxandi vinsælda og telst vera ofurfæða, bæði sem ferskvara og beint á grillið. Fleiri tegundir kunna að bætast við eftir því sem líður á uppskerutímann.

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f