Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Þróun sérmerkinga fyrir íslenskt nautakjöt
Mynd / Úr safni
Fréttir 7. apríl 2026

Þróun sérmerkinga fyrir íslenskt nautakjöt

Höfundur: Þröstur Helgason

MATÍS heldur utan um verkefni sem felur í sér að þróa tillögu að aðgreiningu og sérmerkingu fyrir íslenskt nautakjöt með það að markmiði að auka verðmæti framleiðslunnar og skapa stöðugleika í gæðum.

Verkefnið byggir á samráði við hagaðila í virðiskeðjunni og miðar að því að móta skýr viðmið íslensks gæðastaðals. Verkefnið mun ná til bænda, sláturhúsa, kjötvinnslna og söluaðila og er ætlað að efla samkeppnishæfni íslensks nautakjöts.

Markmið verkefnis er að þróa tillögu að aðgreiningu á íslensku nautakjöti og skilgreina sérmerkingu byggða á gæðaeiginleikum til að auka verðmæti framleiðslunnar.

„Í stuttu máli snýst verkefnið um að þróa tillögu að sérmerkingum fyrir íslenskt nautakjöt sem byggja á skýrum og mælanlegum gæðaeiginleikum (t.d. aldur, fita/ fitusprenging, fall, stofn/kyn, uppruni, fóðrun o.fl.),“ segir Eva Margrét Jónudóttir, verkefnastjóri hjá MATÍS. „Markmiðið er að aðgreina þann hluta framleiðslunnar sem uppfyllir ákveðin gæðaviðmið og þannig skapa meira virði og stöðugri gæði (meiri einsleitni).“

Breytileiki of mikill

Hvaða viðmið verða og hvernig þau verða útfærð er hluti af verkefninu, segir Eva Margrét. „Við munum setja fram tillögur byggðar á rannsóknargögnum og samráði við hagaðila í allri virðiskeðjunni. Einnig verður skoðað út frá sláturgögnum hvernig slíkt kerfi gæti litið út í framkvæmd, m.a. hvaða hlutfall framleiðslunnar gæti fallið undir sérmerkingu og hvort þetta sé raunhæf og hagkvæm leið áfram.“

Ástæðan fyrir verkefninu er sú að breytileiki innan ungnautakjöts hér á landi er of mikill.

„Um þetta hefur verið fjallað, m.a. hjá ykkur í Bændablaðinu,“ segir Eva Margrét, „og þetta er vel þekkt í veitingageiranum. Svona mikill breytileiki hefur auðvitað neikvæð áhrif á samkeppnishæfni við innflutt nautakjöt sem hægt er að fá einsleitara og í meira magni.

Aldursviðmið eru almennt hærri hér á landi en víða erlendis. Í Evrópu er t.d. miðað við um 24 mánaða aldur í skilgreiningu á ungnautum í EUROP kjötmatskerfinu, á meðan viðmiðið hér á landi nær upp í 30 mánuði. Þar sem aldur er lykil áhrifaþáttur fyrir t.d. meyrni þá hefur þetta áhrif á einsleitni og fyrirsjáanleika gæða.

Í raun erum við með breiðara aldursbil en víða annars staðar, og það skilar sér beint í meiri breytileika í gæðum.

Markaðurinn hefur því kallað eftir stöðugri og fyrirsjáanlegri gæðum. Íslenskt nautakjöt er upp til hópa mjög gott, en þegar breytileiki í gæðum er mikill – samhliða háum framleiðslukostnaði og takmörkuðu framboði – verður erfiðara að keppa við innflutt kjöt.“

Hugsað fyrir alla virðiskeðjuna

Lokaafurð verkefnisins verður tillaga að sérmerkingarkerfi sem byggir á gæðastaðli fyrir íslenskt nautakjöt. Staðallinn mun nýtast til að auka verðmæti íslensks nautakjöts, efla samkeppnisfærni þess á sérmörkuðum, tryggja neytendum upplýsingar um uppruna og stöðug gæði,“ segir í fréttinni.

Sérmerkingarnar eru hugsaðar fyrir alla virðiskeðjuna

„Bændur fá skýrari viðmið og hvata til að framleiða kjöt sem fellur undir sérflokk með hærra verðmæti. Afurðastöðvar og vinnsla fá verkfæri til flokkunar og sérstakrar markaðssetningar. Og neytendur fá skýrari upplýsingar um gæði og uppruna,“ segir Eva Margrét og bætir við: „Ég vil að það sé alveg skýrt að tilgangurinn er ekki að verðfella það kjöt sem fellur utan sérmerkinga (innan UN), heldur frekar að skapa hvata með auknu álagi fyrir þá framleiðendur sem ná að skila afurð sem hentar á sérmarkaði.

Ef vel tekst til getur þetta styrkt markaðsstöðu íslensks nautakjöts og gefið bændum betri innsýn í hvað er að skila mestum verðmætum. Í dag fær bóndi upplýsingar um kjötmat, fitumat og fallþunga, en hefur takmarkaða yfirsýn yfir endanlega nýtingu og verðmæti afurðarinnar.“

Verkefnið er enn á þróunarstigi og verður unnið í samráði við hagaðila. Samstarfsaðilar í verkefninu, sem styrkt er af þróunarsjóði nautgripa- ræktarinnar, eru Bændasamtök Íslands, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Háskóli Íslands, Kjarnafæði Norð- lenska og Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga.

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

Töfrar Tálknafjarðar
Fréttir 24. nóvember 2026

Töfrar Tálknafjarðar

Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með...

Fjölmargir arnarungar komnir á legg
Fréttir 23. nóvember 2026

Fjölmargir arnarungar komnir á legg

58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum...