Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Það má alveg velja íslenskt
Af vettvangi Bændasamtakana 16. febrúar 2026

Það má alveg velja íslenskt

Höfundur: Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands

Íslenskir bændur vita að neytendur eru ánægðir með framleiðsluvörur þeirra, enda hafa skoðanakannanir ítrekað sýnt fram á að neytendur vilja frekar kaupa íslenska matvöru en innflutta. Slagorð á borð við „Veljum íslenskt“ hafa áhrif og endurspegla afstöðu almennings. Tollverndinni er meðal annars ætlað að jafna samkeppnisstöðu íslensku matvörunnar og veita neytandanum raunverulegt val.

En umfjöllunarefni þessa pistils er ekki tollverndin, heldur sú staðreynd að í mörgum tilvikum hefur fólk ekkert val um það hvort það leggur sér íslenska eða innflutta matvöru til munns. Í mötuneytum fyrirtækja, skóla, sjúkrahúsa og annarra opinberra stofnana eru neytendur sjaldnast uppýstir um uppruna hráefnanna. Og jafnvel ef þær upplýsingar liggja fyrir, getur neytandinn lítið gert annað en að borða eða ekki.

Það er að sjálfsögðu undir þeim sem stýra mötuneytum einkafyrirtækja komið hvernig þau haga sínum innkaupum, þótt ég myndi alltaf ráðleggja þeim að kaupa íslenskt. Mér þykir hins vegar sérstakt að ekki sé á það lögð nein áhersla í opinberum innkaupum að velja íslenska matvöru fram yfir innflutta.

Þá er ég ekki að segja að íslensk framleiðsla skuli ekki keppa við innflutta matvöru, heldur að það skjóti skökku við að ríki og sveitarfélög skuli ekki sjá hag sínum borgið með því að auka að minnsta kosti hlut íslenskrar matvöru í þeirra innkaupum.

Almenn sátt er um það í landinu að mikilvægt sé að hér sé öflugur íslenskur landbúnaður og matvælaframleiðsla. Þingmenn og ráðherrar tala oft á þessum sömu nótum og segjast vilja íslenskum bændum vel. Því skýtur það skökku við að fyrirtæki og stofnanir ríkisins skuli svo frekar velja innflutta matvöru til notkunar í sínum mötuneytum, en í sumum tilfellum er um stórar stofnanir að ræða og töluvert mikil umsvif í innkaupum mötuneytanna.

Kanadíska ríkisstjórnin kynnti fyrir nokkrum mánuðum nýja innkaupastefnu fyrir stofnanir á vegum alríkisins. Tilgangur hennar er að auka viðnámsþrótt og þolgæði kanadíska hagkerfisins með því að láta kanadíska framleiðendur og kanadíska framleiðsluvöru ganga fyrir í opinberum innkaupum á kostnað innflutts varnings. Þessi stefna nær yfir fleiri og fjölbreyttari þætti en landbúnaðarafurðir, en hún er áhugavert fordæmi engu að síður.

Tilefni þess að nýja stefnan var sett ætti engum að koma á óvart. Þumbaragangur í stjórnvöldum Bandaríkjanna, sem og aukin óvissa í alþjóðamálum almennt, hafa orðið þess valdandi að kanadísk stjórnvöld huga nú frekar en áður að því að tryggja öryggi lands og þjóðar.

Hluti af því er að styrkja innlenda framleiðslu, en markmiðið er ekki að búa svo um hnútana að allar neysluog framleiðsluvörur séu unnar innan landamæra Kanada. Ekkert land getur verið algerlega óháð öðrum löndum … tilraunir í þá átt hafa alltaf endað með skelfilegum ósköpum. Markmiðið er frekar að gera Kanada þrautseigara, betur til þess fallið að þola sveiflur og utanaðkomandi áföll.

Þessi sýn á jafnvel við hér á landi og hjá nágrönnum okkar í vestri. Nýlegar skýrslur og ráðstefnur um fæðuöryggi hafa sýnt fram á að þar er víða pottur brotinn og ýmislegt sem þarf að gera til að auka fæðuöryggi þjóðarinnar. Einfalt, en mjög áhrifaríkt, skref í þá átt væri að auka til muna opinber innkaup á innlendri matvöru.

Ríkið má nefnilega líka „Velja íslenskt“.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...