Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Telja íslenska mjólk fara betur í maga
Mynd / Úr safni
Fréttir 5. maí 2026

Telja íslenska mjólk fara betur í maga

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Rannsókn á vegum Háskóla Íslands hefur leitt í ljós að íslensk mjólk er ríkari af sérstakri gerð próteins en önnur mjólk og fari því betur í maga. 

Íslenska mjólkin er ríkari af svokallaðri A2 gerð beta-casein prótíni. Rannsóknir á þessari gerð beta-caseins hefur fjölgað á síðustu árum. A2 mjólk þykir fara betur í maga en önnur mjólk og því hefur markaðssetning á þeirri tegund mjólkur aukist. 

Samstarf milli fræða og framleiðenda

María Guðjónsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, stýrir rannsókninni sem er jafnframt hluti af doktorsverkefni Didar Farid Kareem Al-Shateri í matvælafræði við sömu deild. Markmiðið með rannsókninni er að öðlast ítarlegri skilning á efnasamsetningu íslensku mjólkurinnar og lögð er áhersla á að rannsaka sérstaklega svokallaða A2 gerð beta-caseins. 

„Fyrri rannsóknir benda til þess að mjólk úr hefðbundnum norrænum kúakynum, að því íslenska meðtöldu, innihaldi hærra hlutfall A2 beta-casein prótína en almennt gengur og gerist en neysla á mjólk sem er rík af þessum A2 beta-casein prótínum er talin tengjast ýmsum jákvæðum heilsufarslegum áhrifum,“ segir María. Jákvæð áhrif séu meðal annars stöðugri upptaka næringarefna úr mjólkinni, minni uppþemba og reglulegri hægðir.

Í doktorsnefndinni sitja Hildur Inga Sveinsdóttir, lektor við Matvæla- og næringarfræðideild og verkefnastjóri hjá Matís, auk  Björns S. Gunnarssonar, vöruþróunar- og rannsóknarstjóra hjá MS. Rannsóknin er þannig samstarfsverkefni Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands, Mjólkursamsölunnar MS og Matís. Vonir standa til að samstarfið leiði til vöruþróunnar og framleiðslu á A2-ríkum mjólkurvörum.

Genasamsetning gæti stjórnað efnasamsetningu mjólkur

Ítarlegri þekking á efnasamsetningu mjólkurinnar veitir mikilvægar upplýsingar um hvort æskilegt sé að flytja inn nytjameiri kúakyn til að auka framleiðslu mjólkur og kjöts hér á landi. „Slíkur innflutningur getur þó haft áhrif á gæðaþætti mjólkurinnar og því ætti ekki að taka ákvarðanir um slíkan innflutning fyrr en allar niðurstöður liggja fyrir,“ segir María.

Þekkt sé að magn A2 beta-caseins í mjólk ræðst að hluta af genasamsetningu kúa, en hugsanlega geti fleiri ytri þættir haft áhrif á A2 beta-casein hlutfall mjólkurinnar.

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...