Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Tækifæri til orkuskipta í landbúnaði
Mynd / Úr safni
Fréttir 6. maí 2026

Tækifæri til orkuskipta í landbúnaði

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Fjárhagsleg sjálfbærni grunnforsenda fyrir sjálfbærum orkuskiptum

Vefþing var haldið á dögunum, þar sem sjónum var beint að stöðu og framtíð orkuskipta í landbúnaði.

Vefþingið var samstarfsverkefni Eims og Orkídeu og hluti af Evrópuverkefnunum RECET og Value4Farm. Í umfjöllun um þingið á vef Orkídeu kemur fram að sjónum hafi verið beint að stöðu og framtíð orkuskipta í einni af lykilgreinum íslensks samfélags og atvinnulífs, með það að markmiði að varpa ljósi á tækifæri til aukins orkusjálfstæðis í landbúnaði.

Gestur Pétursson, forstjóri umhverfis- og orkustofnunar, f lutti opnunarerindi um forsendur sjálfbærni fyrir orkuskipti í landbúnaði.

Framtíðarorkugjafi í sveitum

Fjallað var um fjölbreyttar tæknilausnir á þinginu – sem sumar eru farnar að sjást – og var sérstök áhersla lögð á rafmagns- og metanvæðingu landbúnaðartækja. Í því samhengi var reynslan af notkun metanknúinna dráttarvéla kynnt, ásamt því sem skoðað var hvernig innleiða megi rafvæðingu landbúnaðartækja búum landsins.

Til sérstakrar umfjöllunar var hvernig bændur geta sjálfir gerst framleiðendur að eigin orku úr lífrænum úrgangi þannig að allt metan verði nýtanlegt sem framtíðarorkugjafi í sveitum. 

Fjárhagsleg sjálfbærni grunnforsenda

Gestur Pétursson, forstjóri umhverfis- og orkustofnunar, ávarpaði þingið í Gestur Pétursson, forstjóri umhverfis- og orkustofnunar, ávarpaði þingið í upphafi. Hann sagði að gagnvart landbúnaðinum snúist verkefnið um orkuskipti í landbúnaði ekki einfaldlega um að skipta einum orkugjafa út fyrir annan. Sagði hann að til að orkuskipti geti talist raunverulega sjálfbær þurfi þau að eiga sér stað á þremur sviðum; umhverfislegu, samfélagslegu og fjárhagslegu.

Umhverfislega hliðin felist í því að draga úr eða eyða neikvæðum umhverfisáhrifum og lágmarka kolefnisfótspor greinarinnar. Samfélagslegur ávinningur ætti einnig að fylgja slíkum breytingum, þannig að ný störf skapist og aukin þekking verði til. Loks væri fjárhagsleg sjálfbærni grunnforsenda fyrir sjálfbærum orkuskiptum.

Metangas úr mykjunni

Andrew Parsons, fulltrúi breska tæknifyrirtækisins Bennamann, flutti erindið „Hættu að kaupa eldsneyti og byrjaðu að framleiða það“. Þar kynnti hann hvernig bændur geta breytt búfjáráburði og öðrum lífrænum úrgangi í hágæða metangas til að knýja dráttarvélar og flutningatæki.

Katie Hoare er breskur kúabóndi sem hefur hagnýtt metangasið úr mykjunni til að knýja vélarnar á sínu búi og hún sagði reynslusögu sína á þinginu. Þá flutti Sander Vandendriessche, sem starfar hjá belgísku rannsóknarmiðstöðinni Inagro, erindi um hagrænan og hagnýtan ávinning bænda í evrópska verkefninu Value4Farm, af því að knýja dráttarvélar með metani.

Að auki fluttu erindi þau Sigríður Ólafsdóttir, frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Eiður Guðmundsson, frá Sorpu, og Steinþór Logi Arnarson, formaður Sambands ungra bænda.

Upptökur af þinginu eru aðgengilegar í gegnum vef Eims.  

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...