Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Sveitarstjórnarframboð sammála um mikilvægi matar, en skiptar skoðanir um leiðir
Skoðun 15. maí 2026

Sveitarstjórnarframboð sammála um mikilvægi matar, en skiptar skoðanir um leiðir

Höfundur: Dóra Svavarsdóttir
Dóra Svavarsdóttir.

Þrátt fyrir að sveitarfélög séu meðal stærstu kaupenda matvæla á Íslandi vekur athygli hversu fá framboð til sveitarstjórnarkosninganna 2026 virðast gera sér fulla grein fyrir því valdi sem felst í matarinnkaupum hins opinbera til að styðja við innlenda og svæðisbundna matvælaframleiðslu. Einungis 12 svör bárust við opnu bréfi frá Slow Food á Íslandi, Beint frá býli, Samtökum smáframleiðenda matvæla og VOR – verndun og ræktun, þar sem framboðin voru spurð um stefnu sína í matarinnkaupum, gæði matar í mötuneytum sveitarfélaga og hvort – og hvernig – þau hygðust nýta innkaup sín til að styðja við staðbundna og lífræna framleiðslu. Það er umhugsunarvert í ljósi þess að matvælaframleiðsla er ein af grunnstoðum atvinnulífs hér á landi og lykilforsenda byggðar á flestum svæðum. Sterkur landbúnaður og sjávarútvegur stendur og fellur með eftirspurn eftir afurðunum og þar gegna sveitarstjórnir lykilhlutverki með innkaupum sínum fyrir skóla, leikskóla, mötuneyti og félagsþjónustu.

Í þeim svörum sem bárust kemur skýrt fram að flest framboð eru sammála um að matur í opinberri þjónustu skipti miklu fyrir lýðheilsu, velferð og samfélagið í heild. Það má greina víðtæka sátt um að börn, aldraðir og aðrir notendur opinberrar matarþjónustu eigi að fá hollan, næringarríkan og fjölbreyttan mat. Nokkur framboð ganga lengra og leggja áherslu á að matur í mötuneytum sé ekki einungis rekstrarliður heldur fjárfesting í heilsu og lífsgæðum. Í því samhengi telja mörg framboð að verð eigi ekki að vera eina viðmiðið í innkaupum, heldur þurfi einnig að horfa til gæða, sjálfbærni, uppruna hráefnis og samfélagslegra áhrifa.

Þegar svörin eru skoðuð nánar kemur þó í ljós að framboðin eru með mjög mismunandi sýn á framkvæmd og metnað. Sum leggja fram tiltölulega skýra stefnu og raunhæfar útfærslur, á meðan önnur tala fremur almennt um vilja til að „skoða málin“, „styrkja samstarf við fagfólk“ eða „endurskoða innkaupastefnu“. Þessi munur birtist skýrt þegar borin eru saman stærri og minni sveitarfélög.

Í Reykjavík skera svör Vinstrisins sig úr fyrir ítarlega umfjöllun um Matarstefnu borgarinnar, eldhúsumsjónarkerfi, kolefnisspor máltíða og markmið um mat sem eldaður er frá grunni. Þar er sett fram skýr sýn á hvernig innkaup og skipulag geta dregið úr matarsóun, bætt gæði og minnkað umhverfisáhrif. Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkurinn í Reykjavík leggja hins vegar áherslu á innvistun matarþjónustu, gagnrýna útvistun og telja að opinber rekstur tryggi bæði betri gæði og lægri kostnað til lengri tíma.

Í Hafnarfirði og Kópavogi endurspegla svörin fremur hefðbundna nálgun stærri sveitarfélaga, með áherslu á gagnsæ og lögbundin innkaupaferli, jafnræði bjóðenda og samkeppni, samhliða yfirlýstum vilja til að auka gæði og sjálfbærni. Stuðningur við smærri og staðbundna framleiðendur er oft settur fram sem markmið, en bundinn þeim takmörkunum sem framboðin telja felast í lögum um opinber innkaup.

Á landsbyggðinni eru svörin almennt jarðbundnari og nátengd staðbundnum aðstæðum. Framsókn á Höfn í Hornafirði nefnir til dæmis að þegar sé unnið mikið með sjálfbært sjávarfang úr héraði, egg og grænmeti frá nærsamfélaginu, en að áskoranir snúi að aðgengi að kjötmeti. Þar er jafnframt horft til raunhæfra lausna, svo sem þjónustusláturhúss, til að styðja við staðbundna framleiðslu. A-listinn í Grímsnes- og Grafningshreppi leggur sambærilegan metnað í að auðvelda tengsl smáframleiðenda við mötuneyti og stofnanir með bættum dreifikerfum og í sama streng tekur Þ- listinn í Bláskógabyggð. Í Fjarðabyggð bendir Samfylkingin á að núverandi innkaupakerfi séu oft of stíf og útiloki smærri aðila, þrátt fyrir að lög og reglur bjóði upp á meira svigrúm en oft er nýtt.

Í heild sýna svörin að opinber matarinnkaup eru pólitískt málefni sem tengist bæði lýðheilsu og framtíð íslenskrar matvælaframleiðslu. Samhljómurinn um markmiðin er mikill, en ágreiningurinn snýst um leiðirnar og hversu langt sveitarfélögin eru tilbúin að ganga í að nýta innkaup sín sem virkt tæki til að styðja við gæði, sjálfbærni og innlenda og lífræna framleiðslu. Úrslit kosninganna munu því skipta máli fyrir bændur og smáframleiðendur um allt land, ekki síður en fyrir nemendur, eldri borgara og aðra sem reiða sig á mat í opinberri þjónustu.

Höfundur er formaður Slow Food á Íslandi.

Skylt efni: Slow Food | kosningar

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...