Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Meðal þátttökuverkefna Íslendinga sem hlutu styrk frá NordForsk er að efla norrænt samstarf ungs jarðvísindafólks sem m.a. greinir viðbragðstíma jökuljaðra í tengslum við loftslagsbreytingar.
Meðal þátttökuverkefna Íslendinga sem hlutu styrk frá NordForsk er að efla norrænt samstarf ungs jarðvísindafólks sem m.a. greinir viðbragðstíma jökuljaðra í tengslum við loftslagsbreytingar.
Mynd / Pixabay
Fréttir 18. mars 2026

Styrkir frá NordForsk

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Þrjú íslensk verkefni fengu styrk frá NordForsk í mánuðinum. Þau tengjast náttúruvísindum og verkfræði.

NordForsk bárust alls 32 umsóknir og fengu 15 svokölluð net úthlutað fjármagni. Ísland tekur þátt í þremur þeirra og leiðir eitt, allt á vegum Háskóla Íslands. Frá þessu greinir á vef Rannís.

NextGen Nordic Geotechnics: Að brúa sjálfbærni, verkfræði og ný rannsóknasvið, er eitt af verkefnunum þremur. Lýtur það að því að byggja upp norrænt tengslanet ungra jarðtækniverkfræðinga frá Íslandi, Noregi og Finnlandi, sem þróar nýjar, sjálfbærar og stafrænar lausnir við jarðvegs- og loftslagsáskorunum á Norðurlöndum.

Annað verkefnið nefnist Nordic Palaeo Alliance og snýst um að efla norrænt samstarf ungs jarðvísindafólks frá Íslandi, Danmörku og Svíþjóð, sem leitast við að fínstilla aldursgreiningu á jökulruðningum og loftslagsskrám til að greina viðbragðstíma jökuljaðra, tengsl hegðunar jökla við drifkrafta og bæta líkanreikninga. 

Þriðja verkefnið kallast NextGen-WBG. Rannsóknin fjallar um að efla norrænt samstarf ungra vísindamanna á sviði breiðbandsbils-hálfleiðara sem gegna lykilhlutverki í grænni og stafrænni framtíð Evrópu. Samstarfslönd eru Noregur, Finnland, Svíþjóð og Ísland.

NextGen-WBG netið sameinar nýliða í rannsóknum á efnum á borð við SiC, GaN og demant, sem gera rafbúnaði kleift að verða skilvirkari, endingarbetri og orkusparandi. Markmiðið er að tengja saman 12 rannsóknarhópa frá Norðurlöndum og Litáen og efla þekkingu um alla virðiskeðjuna.

NordForsk er norræn stofnun sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um menntun og rannsóknir. Hlutverk hennar er að hafa umsjón með samstarfi á sviði rannsókna og rannsóknamenntunar á Norðurlöndunum. Hámarksfjármögnun fyrir hverja tillögu er venjulega um 2,5 milljónir norskra króna, samsvarandi rúmlega 32 milljónum íslenskra króna.

Skylt efni: Styrkir | NordForsk

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...