Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Stórlandbúnaður fer illa með býflugur
Utan úr heimi 29. júní 2026

Stórlandbúnaður fer illa með býflugur

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Býflugnabændur í Bandaríkjunum glötuðu á síðasta ári rúmlega 60% býflugnabúa sinna og er það eitt stærsta skrásetta býflugnatap þarlendis.

Fækkun býflugna stafar af fjölbreyttum vandamálum tengdum loftslagsvá, líkt og hitasveiflum og búsvæðatapi, en stórlandbúnaður til matvælaframleiðslu spilar einnig stóran þátt.

Býflugan er minnsti en einna mikilvægasti verktakinn í landbúnaði. Býflugnarækt sem snýr að frjóvgun korns, fræja, ávaxta og grænmetis er burðarstólpi ræktunar þessara matvæla og talið er að þriðjungur allra nytjaplantna í heiminum sé frjóvgaður af býflugum.

Í Bandaríkjunum frjógva býflugur rúmlega 130 tegundir ávaxta, grænmetis og hneta. Býflugurnar eru fluttar í bílförmum milli akra þvert yfir landið og fylgja manngerðum tímaáætlunum. Þeim eru gefin fæðubótarefni í miklu magni til að auka framleiðni, jafnvel þegar búin eru einna veikust, líkt og í febrúarmánuði þegar þarf að frjóvga möndlutré. Þessi vinnuskilyrði hafa skaðleg áhrif á flugurnar og reynir sömuleiðis á býflugnabændur.

Hin ýmsu íðefni eru notuð í stórlandbúnaði og þó að mörg þeirra séu ekki merkt eitruð býflugum þá eru þau næstum banvæn. Efni líkt og sveppaeyðar og skordýraeitur sem inniheldur óvirk efni (e. inert pesticide), sem hafa hingað til ekki verið talin hættuleg býflugum, geta stöðvað eðlilegan vöxt býflugna, truflað æxlun þeirra og atferli við fæðuleit. Rannsóknir hafa meðal annars sýnt fram á að efni líkt og sveppaeyðirinn Pristine geti skaðað minni býflugna.

Í stærri verkefnum, eins og frjóvgun möndlutrjáa í Kaliforníu, koma um 95% býflugnaræktenda til ríkisins með rúmlega tvær milljónir býflugna. Þetta er arðbært en áhættusamt þar sem meiri líkur eru á að hópar blandist og smitist þannig af varroa-mítlum, sníkjudýrum sem bera með sér banvæna sjúkdóma. Mikill niðurskurður hefur orðið á rannsóknum tengdum landbúnaði undir ríkisstjórn Trumps. Nú stefnir ráðuneytið á að loka Beltsvillebýflugnarannsóknarstöðinni í Maryland-ríki en sú stofnun hefur verið leiðandi í rannsóknum og sjúkdómavörnum býflugna í rúm 90 ár.

Fækkun býflugna hefur víðtæk áhrif og matvælaiðnaður og stórlandbúnaður verða að styðja við bak býflugnaræktar og skapa öruggari skilyrði með því að endurskoða merkingar á íðefnum, styðja við rannsóknir og skapa fleiri náttúruverndarsvæði. Án býflugnanna fellur ræktunarkerfið um sjálft sig og með því matvælakerfin sem við stólum á.

Ullarvika í fjórða sinn
Fréttir 28. september 2026

Ullarvika í fjórða sinn

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október n...

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða
Fréttir 28. september 2026

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs verða skert um 3,2 milljarða króna á næsta á...

Bændur hljóta viðurkenningu
Fréttir 28. september 2026

Bændur hljóta viðurkenningu

Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í V...

Hestamynd og hellabíó
Fréttir 28. september 2026

Hestamynd og hellabíó

Reykjavík International Film Festival (RIFF) hefst 24. september og stendur yfir...

Hægur samdráttur og langt frá markmiðum
Fréttir 28. september 2026

Hægur samdráttur og langt frá markmiðum

Tæplega fjögurra prósenta heildarsamdráttur varð í heildarlosun gróðurhúsaloftte...

Greiðslustaðan afar erfið
Fréttir 25. september 2026

Greiðslustaðan afar erfið

Sala á vörum Ístex hefur verið góð seinni part sumars. Greiðslustaðan er þó enn ...

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu
Fréttir 25. september 2026

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu

Sláturfélag Suðurlands frestar verðhækkunum haustsins til þess að koma til móts ...

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert ...