Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Steinþór Logi Arnarsson, formaður Samtaka ungra bænda.
Steinþór Logi Arnarsson, formaður Samtaka ungra bænda.
Skoðun 27. ágúst 2026

Stór ákvörðun

Höfundur: Steinþór Logi Arnarsson

Ég held að þegar upp verði staðið hafi margt gott fengist út úr líflegri umræðu sumarsins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort Ísland eigi að skoða frekar aðild að Evrópusambandinu. Það góða er til dæmis að mikið hefur verið talað um landbúnað og matvæli. Jafnvel þó umræðan hafi líka af og til, of oft í raun, lent úti í skurði, fjarri kjarna þess sem mestu máli skiptir í þessu samhengi. Auðvitað eru fjölmargir fletir á mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu, heildarmyndin skiptir því öllu máli.

Hvað þýðir nei?

Sú mynd hefur verið máluð upp af þeim sem kjósa nei, að það séu afturhaldsseggir þjóðfélagsins, varðhundar sérhagsmuna, fólk sem vilji „hjakka í sama farinu“ og jafnvel stoppa tímann. Því miður hafa bændur setið mikið undir slíku en ég held að slík ummæli dæmi sig sjálf. Þau sem segja nei er fólk sem metur stöðu landsins sterka og framtíðinni betur borgið áfram á þeirri braut sem hefur skilað okkur frá því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu í það ríkasta. Þeir sem segja nei hljóta því að hafa trú á valdhöfum til að láta svo verða áfram. Þeir sem láta fyrrnefnd ummæli falla um þá sem hafa þá skoðun hafa sennilega orðið litla trú á að svo geti orðið, að okkur takist að leysa úr þeim áskorunum sem flest sammælast um að séu fyrir hendi. Það er auðvitað rökrétt fyrir það fólk að segja já.

Hvað þýðir já?

Því hefur þó verið haldið fram að það sé ekkert mál að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið til þess eins að „fá að vita meira“. Ég vona og treysti því að þau sem kjósi já geri það að vel athuguðu máli og af þeirri ástæðu að þau hafi einlæglega þá trú að það sé framtíð Íslands fyrir bestu. En þrátt fyrir þá trú er eðlilegt að setja fyrirvara um endanlegar forsendur aðildarsamnings sem þjóðin fær að taka endanlega ákvörðun um.

„Brjálæðislega flókið“

Þau sem kjósa já eru ekki landráðafólk, þótt þau hafi þá trú að Íslandi farnist betur en ella með framsali valds úr höndum okkar. Ég hef svo sem ekki séð það orð mikið notað í umræðunni, sem betur fer. Að segja já er stór ákvörðun og í því samhengi vil ég vitna í orð forsætisráðherra vor, Kristrúnar Frostadóttur, sem sagði að það væri „brjálæðislega flókið“ að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er einmitt það sem við munum vinna með, verði niðurstaðan já. Það er mikilvægt að hafa í huga að aðildarsamningur mun engu bæta við hvað Evrópusambandið er né heldur hvað það verður.

Hvað sem verður

Ég vona að sem flestir kjósendur líti á meiningu atkvæðanna sem næst þessu því það skiptir miklu máli fyrir trúverðugleika okkar gagnvart öðrum þjóðum. Að okkur sé alvara ef að aðildarviðræðum verður og við stöndum saman sem þjóð með þeirri niðurstöðu sem út úr atkvæðagreiðslunni kemur. Tökum lýðræðislega ábyrgð á því verkefni sem okkur hefur verið fært í hendurnar, kynnum okkur staðreyndir eins og unnt er og tökum afstöðu út frá því. Viljum við verða aðili að Evrópusambandinu eða ekki?

Mætum á kjörstað og kjósum eftir okkar trú.

Höfundur er formaður Samtaka ungra bænda.

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

Töfrar Tálknafjarðar
Fréttir 24. nóvember 2026

Töfrar Tálknafjarðar

Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með...

Fjölmargir arnarungar komnir á legg
Fréttir 23. nóvember 2026

Fjölmargir arnarungar komnir á legg

58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum...