Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn

Ástin verður vatnsberanum mikill gleðigjafi þessa vikuna og einhver nýr gæti komið inn í líf hans, þó einungis til að bera honum fallegan boðskap. Andlegt og líkamlegt heilbrigði er í góðu jafnvægi ef hreyfing er höfð í fyrirúmi auk nægrar hvíldar ... Athugaðu það nú vel, vatnsberi! Happatölur 4, 17, 28.

Fiskarnir

Fiskarnir þurfa að tala opinskátt um tilfinningar sínar og vega og meta það sem þeir sjá fyrir sér í nánustu samskiptum. Fiskarnir verða þó að gæta þess að taka tillit til þeirra sem eru í kringum hann og vera ekki með æsing. Á vinnustaðnum fá fiskarnir tækifæri til að sýna hæfileika sína og vekja athygli yfirmanna. Happatölur 3, 19, 31.

Hrúturinn

Hrúturinn á von á nokkrum verkefnum sem reyna á leitogahæfileika hans og áræðni. Líkamsrækt er nauðsynleg samhliða verkefnunum enda nauðsynlegt að leyfa haustgolunni að blása inn og út um öll skilningarvit. Hrúturinn þarf ekki að hafa neinar áhyggjur þótt honum þyki liggja þungt á sér því allt fer vel að lokum. Happatölur 7, 12, 45.

Nautið

Nautið á von á því að málefni hjartans sem hafa legið undir feldi fái nú nýtt líf. Einhver kemur skemmtilega á óvart, einhver sem nautið hefur ekki átt stund með lengi og von er á hlýjum stundum saman í rólegheitum. Á ferlinum gengur allt að óskum og þolinmæði skilar loksins einhverju sem beðið hefur verið eftir. Happatölur 5, 22, 33.

Tvíburarnir

Tvíburarnir upplifa nú spennandi tíma fram undan þegar kemur að ástinni og létt spjall leiðir óvænt til dýpri tengsla við maka eða einhvern sem áður var álitinn vinur. Gott er að reyna að hafa heimil á eyðslunni og ekki síst fylgjast vel með daglegum útgjöldum sem geta verið lúmsk. Í vinnu eða námi hefjast skyndilega margar krefjandi áskoranir, þarft er að gæta þess að streitan taki ekki völdin. Happatölur 9, 14, 27.

Krabbinn

Krabbinn finnur hvernig tilfinningalegt öryggi skiptir miklu máli í ástinni og hann má ekki gleyma því að sækja slíkt í faðm fjölskyldu og vina. Peningamálin eru í ágætu horfi en mögulega kemur upp sú staða að hann þarf að styðja einhvern nákominn fjárhagslega. Sú aðstoð mun margborga sig þegar upp er staðið. Happatölur 2, 18, 36.

Ljónið

Ljónið finnur hvernig skapandi orka fyllir líf hans og hann mun að nokkrum tíma liðnum taka skynsamlegar ákvarðanir sem efla hann enn fremur á sköpunarbrautinni. Ljónið má halda áfram að hlúa að sér og íhuga framtíðaráform með það í huga að verða enn betri útkoma af sjálfum sér en nokkru sinni áður. Fjárhagurinn er traustur. Happatölur 15, 5, 65.

Meyjan

Meyjan finnur hvernig andlegur styrkur hennar eflist þegar hún skipuleggur líf sitt í rólegheitunum. Hún er ein þessara mannvera sem hagnast hvað mest á því að skipta verkefnum niður í smærri einingar og vera óhrædd við að fá aðstoð. Ekki síst með það í huga að læra af öðrum, því þannig fara meistararnir að. Happatölur 6, 23, 44.

Vogin

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni en þar mun ríkja sátt og samlyndi. Vogin þarf að minna sig á að heimurinn ferst ekki þó mikið sé um að vera, skipulagning, djúpöndun og það að tala um það sem á henni liggur hjálpar mikið og getur róað óróar tilfinningar. Happatölur 8, 15, 29.

Sporðdrekinn

Sporðdrekinn finnur fyrir óþarflega miklu eirðarleysi þessa dagana og ætti að láta það eftir sér að fara í skemmtilegt ferðalag sem fyrst. Helst þar sem mikið verður um hreyfingu eða útiveru. Í kortunum eru stór verkefni sem þarfnast stóískrar einbeitingar og mest um vert að láta þau ekki bíða. Happatölur 10, 21, 38.

Bogamaðurinn

Bogmaðurinn þarf að minna sig á að andlegur stöðugleiki kemur með því að sleppa tökum á því sem ekki er hægt að stjórna. Bogmaðurinn er gjarnan í þeirri stöðu að aðrir líta til hans sem fyrirmyndar og þarf að geta staðið keikur í báða fætur. Fjármálin eru á réttri hillu og fara hægt upp á við. Happatölur 3, 25, 49.

Steingeitin

Traust og vel úthugsaðar samræður dýpka tengsl steingeitarinnar við sína nánustu. Einhverja elda þarf að slökkva og má steingeitin vera óhrædd við að leiðbeina sér yngri með ró, en þó nokkurri festu. Nú er uppskera erfiðis í sjónmáli og andlegt heilbrigði batnar til muna með hverjum haustvindinum sem andað er að sér. Happatölur 4, 16, 35.

Skylt efni: stjörnuspá

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...