Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Starfsemi blóðtöku úr fylfullum hryssum nú leyfisskyld
Mynd / ghp
Fréttir 1. júní 2022

Starfsemi blóðtöku úr fylfullum hryssum nú leyfisskyld

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Lagaumgjörð um blóðtöku úr fylfullum hryssum er afar óljós en lagaheimild er til staðar til að gera starfsemina leyfisskylda. Því hefur Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, ákveðið að setja reglugerð um starfsemina sem mun gilda til þriggja ára. Í henni verður skýrt kveðið á um hvaða skilyrði starfsemin þarf að uppfylla auk þess sem starfsemin verður leyfisskyld.

Þetta er meðal annars sem kemur fram í fregn Stjórnarráðsins að tilefni þess að starfshópur sem matvælaráðherra, skipaði í lok árs 2021 til að skoða starfsemi, regluverk, eftirlit og löggjöf í kringum blóðtöku úr fylfullum hryssum skilaði skýrslu sinni.

Í skýrslunni, sem nálgast má með því að smella hér, er rýnt í  umfang starfseminnar, eftirlit, dýravelferð, löggjöf, sjónarmið hagaðila og tillögur settar um framhaldið.

"Í skýrslunni kemur fram að lagaumgjörðin um blóðtöku úr fylfullum hryssum sé afar óljós og ekki viðunandi þar sem um nokkuð umfangsmikla og umdeilda starfsemi er að ræða. Það er mat starfshópsins að lagaheimild sé til staðar til að starfsemin sé gerð leyfisskyld og því ekki þörf á lagabreytingum til að svo megi verða. Á grundvelli skýrslunnar hefur matvælaráðherra ákveðið að setja reglugerð um starfsemina sem mun gilda til þriggja ára. Í reglugerðinni verður skýrt kveðið á um hvaða skilyrði starfsemin þarf að uppfylla og jafnframt að starfsemin sé leyfisskyld.

Með setningu slíkrar reglugerðar yrði hin óljósa réttarstaða þessarar starfsemi færð til betri vegar. Gildistími reglugerðarinnar verður nýttur til að fylgjast með framkvæmd starfseminnar og leggja mat á framtíð hennar. Samhliða telur matvælaráðherra rétt að efna til sérstakrar umfjöllunar um siðferðileg álitamál tengd starfseminni. Með því að setja reglugerð af þessu tagi verður skýrt að starfsemin sé leyfisskyld og háð skilyrðum og jafnframt að hún fellur ekki undir ákvæði reglugerðar nr. 460/2017, um dýr sem notuð eru í vísindaskyni.

Líkt og fram kemur í skýrslunni munu skilyrði reglugerðarinnar byggja á sömu skilyrðum og Matvælastofnun setur nú. Hópurinn leggur einnig til að þau verði hert m.a. með tilliti til þeirra sjónarmiða sem fram komu hjá hagaðilum og öðrum sem starfshópurinn ræddi við. Setja þarf ítarlegri ákvæði um aðbúnað og aðstöðu, eftirlit með ástandi hrossa varðandi heilbrigði, hófhirðu og skapgerðarmat, vinnuaðferðir við blóðtökuna sjálfa og um innra og ytra eftirlit með henni.

Þá telur hópurinn nauðsynlegt að óháður aðili svo sem Tilraunastöðin á Keldum sannreyni mælingar á blóðbúskap hryssnanna að minnsta kosti tímabundið. Nauðsynlegt er einnig að skilyrði verði sett um aldursbil hryssna í blóðtöku, hámarksfjölda í stóðum og hámarksfjölda sem dýralæknir má hafa umsjón með í blóðtöku. Þá er eðlilegt að aðstoðarmaður undir stjórn dýralæknis sé til staðar við hvern blóðtökubás til að geta brugðist skjótt við ef vandamál koma upp.

Hópurinn leggur einnig til að ekki verði leyfilegt að notast við framleiðslukerfi sem hvetur til og byggir á magnframleiðslu enda geti það stefnt velferð dýranna í hættu.

Með reglugerðinni verður jafnframt kveðið á um ábyrgð þeirra aðila sem að blóðtökunni koma, þ.e. hver beri ábyrgð á hrossunum (hryssur og folöld) í hverjum verkþætti blóðtökunnar frá því að rekið er að og þar til hrossin eru komin í varanlegt beitarhólf aftur," segir í fregn Stjórnarráðsins.

 

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu
Fréttir 11. desember 2025

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu

Ný rannsókn Matís sýnir að kolefnisspor helstu íslenskra matvæla – mjólkur, kjöt...

Þörungakjarni með mörg hlutverk
Fréttir 11. desember 2025

Þörungakjarni með mörg hlutverk

Undirrituð hefur verið formleg viljayfirlýsing um stofnun Þörungakjarna á Akrane...

Húsaeiningar frá Noregi
Fréttir 9. desember 2025

Húsaeiningar frá Noregi

Nýlega komu um tvö þúsund fermetrar af svonefndum „Modulum“, sem eru forsmíðaðar...

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni

Alþingi hefur samþykkt framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár til ársins 2029. Um tí...

Gervigreind í Grímsnesi
Fréttir 9. desember 2025

Gervigreind í Grímsnesi

Grímsnes- og Grafningshreppur tekur nú þátt í þróunarverkefni í samstarfi við up...

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni

Þingsályktunartillaga um nýtt fyrirkomulag jarðakaupa frumkvöðla á landsbyggðinn...

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti
Fréttir 8. desember 2025

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti

Niðurstöðu COP30 sem fram fór í Brasilíu í nóvember hefur verið lýst sem lægsta ...

Fituúrgangur til framleiðslu á hreinsivörum
Fréttir 8. desember 2025

Fituúrgangur til framleiðslu á hreinsivörum

Nýsköpunarfyrirtækið Gefn sérhæfir sig í framleiðslu á umhverfisvænum bílahreins...