Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Bakað eggaldin með eggi og tómat.
Bakað eggaldin með eggi og tómat.
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 18. janúar 2019

Smjörhjúpað naut og girnilegt eggaldin

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Fyrir stuttu horfði ég á myndband þar sem matreiðslumaður sagðist búinn að finna bestu aðferð fyrir meyrnun eða þurrverkun á nautakjöti (dryage), sem er að hjúpa vöðvann með smjöri og láta hann meyrna þannig í kæli í 60 daga.
 
 
Stundum er notað lard (svínafeiti) við verkun á kjöti, til dæmis á Parmaskinku, og er líka ódýrara hráefni en smjörið. 
 
Reyndar er lard blanda af hakkaðri fitu af svíni, með viðbót af salti og pipar, stundum einnig hrísgrjónamjöli.
 
Rósmarín extract er líka hægt að nota sem gott náttúrulegt rotvarnarefni. 
 
Rósmarínþykkni er gert með eimingu á rósmarínlaufum og er öflugt rotvarnarefni sem virkar sem skjöldur fyrir kjötið þannig að það eldist hægar og rotnar síður. 
 
Í mannkynssögunni hefur baráttan um geymslu á matvælum, varðveislu og bragðbætingu leitt af sér  ýmsar kryddblöndur og efni til að kjöt og matvæli geti geymst lengur. 
 
Svartur pipar er hugsanlega fyrsta hráefnið sem var reglulega notað bæði sem krydd og rotvarnarefni. Salt er líka skilvirkt rotvarnarefni – vegna eiginleikans að taka vökva úr matvælum – en er líka örverueyðandi eins og piparinn. 
 
Ég mæli með að fólk geri tilraunir með að láta kjöt meyrna við bestu aðstæður og er betra að nota ferskt kjöt frekar en frosið, vegna vökvatapsins sem verður við þíðingu.
 
Svo er tilvalið að elda kjötið eftir smekk hvers – og með uppáhalds meðlætinu.
 
Bakað eggaldin með eggi og tómat
 
Hér eru svo uppskriftir til að auka við grænmetisátið eftir hátíðarnar. 
  • Ólífuolía fyrir steikingu 
  • 2 stór eggaldin, sneidd
  • ½ rauðlaukur, sneiddur
  • 1 rif hvítlaukur, fínt saxaður 
  • 8 stórir tómatar saxaðir 
  • 125 ml tómatsafi eða tómatpassata
  • ½ tsk. salt 
  • ½ msk. svartur pipar 
  • ½ tsk. broddkúmen (valfrjálst)
  • 6 stór egg 
  • 100 g fetaostur
  • Pítubrauð
  • Kryddjurtir að eigin vali, til dæmis steinselja og minta
Aðferð
Forhitið ofninn í 220 gráður. 
 
Hitið eina matskeið af olíu í pönnu. Steikið eggaldinsneiðar í 3–4 mínútur á hvorri hlið eða þangað til þær eru fallega brúnar og mjúkar – og steikið í skömmtum ef þær komast ekki allar í einu. 
 
Bætið við meiri olíu á pönnuna ef þess þarf. Færið sneiðarnar á disk. 
 
Hitið tvær matskeiðar af olíu í miðlungsstórri pönnu og mýkið laukinn í olíunni. Hrærið hvítlauk saman við og eldið í aðra mínútu til viðbótar. Bætið tómötum við ásamt tómatsafanum og eldið í um átta mínútur þar til tómatarnir hafa brotnað niður og sósan þykknað aðeins. Kryddið með salti, svörtum pipar og broddkúmeni. 
 
Setjið lag af eggaldinsneiðum yfir botninn á stóru fati, setjið  helming tómatsósunnar yfir. Endurtakið með önnur tvö lög. Gerið holu í sósuna með bakinu á stórri skeið og brjótið egg þar ofan í. Gerið það sama allt um fatið þar til öll eggin eru komin í sína holu og stráið fetaosti yfir. Bakið í ofninum í fimm mínútur. Skreytið með steinselju og mintu og framreiðið með pítubrauði.
 
 
Hummus
  • 2 dósir soðnar kjúklingabaunir (500 g)
  • 75 ml ferskur sítrónusafi
  • 1–2 rif hvítlaukur
  • 150 g tahini (sesampaste) 
Aðferð
Unnið saman þar til það er rjómakennt (þarf stundum auka vatn eða kjúklingasoð).
 
Kryddið með ögn af broddkúmeni eftir smekk, salti og pipar og  bragðbætið með sítrónusafa, hvítlauk og tahini.
 
Svo er hægt að krydda á ýmsan hátt; með jalapeno-chili, karrí, turmerik eða nota bakað eggaldin – sem er ein frægasta uppskriftin og heitir þá baba ganoush. Þá er steiktu eggaldini blandað við tahini þar til blandan er orðin þykk. Þá er hún bragðbætt með sítrónusafa, hvítlauk, saxaðri steinselju og salti. 
 
Borið fram með flatbrauði, fersku grænmeti og ólífuolíu.
Loðdýrabændur starfa áfram í deild Bændasamtaka Íslands
Fréttir 9. apríl 2026

Loðdýrabændur starfa áfram í deild Bændasamtaka Íslands

Loðdýrabændur munu áfram starfa í sérstakri búgreinadeild, þó einungis eitt bú s...

Skilyrði verði sköpuð fyrir aukna innlenda framleiðslu
Fréttir 9. apríl 2026

Skilyrði verði sköpuð fyrir aukna innlenda framleiðslu

Deildarfundur garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands var haldinn á Búnaðarþingi í...

Hrönn nýr formaður skógarbænda
Fréttir 9. apríl 2026

Hrönn nýr formaður skógarbænda

Stjórnar og formannsskipti voru gerð í deild skógarbænda. Hrönn Guðmundsdóttir e...

Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits
Fréttir 9. apríl 2026

Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits

Deild alifuglabænda í Bændasamtökum Íslands sendi frá sér ályktun þar sem því va...

Nýr formaður hrossabænda
Fréttir 9. apríl 2026

Nýr formaður hrossabænda

Skeggrætt var á fundi hrossabænda á deildarfundi þeirra á Búnaðarþingi í lok mar...

Tollur fylgir ekki verðlagi
Fréttir 9. apríl 2026

Tollur fylgir ekki verðlagi

Á deildarfundi eggjabænda hjá Bændasamtökum Íslands lögðu fulltrúar áherslu á að...

Vilja leyfi til að flytja inn laxahrogn
Fréttir 9. apríl 2026

Vilja leyfi til að flytja inn laxahrogn

Landeldisbændur á Búnaðarþingi lögðu fram þrjár umfangsmiklar tillögur sem snert...

Gripagreiðslur til fjölgunar geita
Fréttir 9. apríl 2026

Gripagreiðslur til fjölgunar geita

Nýtt skýrsluhaldskerfi kemst brátt í gagnið og er mikilvægt til utanumhalds á st...