Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús
Mynd / smh
Fréttir 19. maí 2026

Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur ákveðið að byggja nýtt stórgripasláturhús við afurðastöðina á Selfossi.

Stærðin er um 1.200 m2 og kostnaður gróflega áætlaður um 900 milljónir króna. „Með nýju húsi bætist við gorklefi sem hefur vantað og gerir kleift að vinna vambir og garnir stórgripa og gera úr þeim verðmæti í stað þess að borga fyrir þessar afurðir til Orkugerðarinnar. Jafnframt verður mikil bæting á stórgriparéttinni með mörgum einstaklingsstíum, sem bæta líðan dýranna og vinnuaðstöðu starfsfólks og dýralækna. Einnig verður möguleiki á að slátra 5–600 kindum á dag og bjóða þannig ferskt dilkakjöt frá fyrri hluta ágúst og fram til jóla,“ segir Steinþór Skúlason, forstjóri SS, og bætir við: „Sparnaður og ávinningur með nýju húsi er um 300 milljónir króna yfir 25 ára tímabil og því má segja að kostnaður við fjárfestinguna sé um 600 milljónir króna.“

Vonast er til að framkvæmdir við nýja húsnæðið geti hafist í byrjun næsta árs og yrði þá lokið fyrir haustið 2028. Í dag starfa um 15 starfsmenn hjá SS á Selfossi en þeim mun fjölga upp í 130 þegar slátrun sauðfjár hefst í haust en reiknað er með að slátra um 100 þúsund fjár.

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f