Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Á tímabili var Árni Ingólfur Halldórsson Hafstað allt í senn; heyrna- og talmeinafræðingur, kúabóndi, bruggari og brugghús- og bareigandi.
Á tímabili var Árni Ingólfur Halldórsson Hafstað allt í senn; heyrna- og talmeinafræðingur, kúabóndi, bruggari og brugghús- og bareigandi.
Mynd / Aðsend
Líf og starf 19. desember 2022

Skagfirska bjórsveiflan

Höfundur: Höskuldur og Stefán

Í síðustu tölublöðum Bændablaðsins hefur saga handverksbrugghúsanna á Íslandi verið rakin.

Tímaröð þeirra er á þá leið að fyrst kom Kaldi árið 2006, þá Ölvisholt 2008 og því næst Mjöður, bjórgerð staðsett í Stykkishólmi, sem lagði þó fljótlega upp laupana líkt og lesa mátti um í 20. tbl. Bændablaðsins. Það sem þessi þrjú brugghús áttu öll sameiginlegt var að vera starfrækt úti á landi og næsta brugghús í þessari umfjöllun var þar engin undantekning.

Maður er nefndur Árni Ingólfur Halldórsson Hafstað. Hann lætur kannski ekki mikið yfir sér við fyrstu sýn, en við nánari kynni verður hverjum manni ljóst hvílíkt orkubúnt hann er. Ef veitufyrirtækin fyndu leið til að tappa af honum væri orkuvandinn leystur og óþarft fyrir vísindamennina vestanhafs að sóa meiri tíma í að skoða þennan kalda samruna. Á tímabili var Árni allt í senn; heyrna- og talmeinafræðingur, kúabóndi, bruggari, brugghús- og bareigandi og örugglega með fleiri járn í eldinum.

Árni var bóndi í Útvík í Skagafirði ásamt því að þeysast um landið til að mæla eyru og hlustir landsmanna. Sem áhugamaður um bjór og bjórmenningu æxlaðist það þannig að Árni og vinur hans Jóhann skelltu sér á bruggnámskeið til Danmerkur árið 2008. Þetta örnámskeið í Danaveldi varð til þess að þeir fóru að brugga heima í eldhúsinu í Útvík, með frumstæðum tækjum, þar sem þeir möluðu korn með kökukeflum og prófuðu sig áfram með tækni sem lagði grunninn að því sem koma skyldi.

Strandaglópar vegna sprengigoss

Árið 2010 ákváðu þeir að afla sér frekari þekkingar og skelltu sér til Bury, rétt norðan við Manchester, til að leggja frekari stund á bjórgerðina en þar lærðu þeir hjá manni sem hét því viðeigandi nafni David Porter. Fóru þeir félagar út í apríl það ár en urðu um skeið strandaglópar á Bretlandi þar sem sprengigos hófst í Eyjafjallajökli og öll flugumferð stöðvaðist meira og minna í nokkra daga.

Í Útvík var gamalt hænsnahús sem hafði haft hlutverk uppeldisaðstöðu fyrir kálfa. Það hafði staðið autt um árabil þar sem reist hafði verið annað og betra kálfahús. Ástand hússins þótti þó ágætt og fannst Árna ómögulegt að rífa bygginguna.

Það sem var þó kannski einna áhugaverðast við mannvirkið var stærðin. Húsið var nefnilega 18 x 7 metrar, sem eru sömu hlutföll og á algengustu póstumslögunum.

Auðsótt nafngift

Þar sem Jóhann og Árni lágu og biðu eftir því að gosinu þóknaðist að hleypa þeim heim ræddu þeir um framtíðina. Þar sem í ljós hafði komið að Porter karlinn var ekki bara með námskeið í bjórgerð heldur seldi hann líka tæki og lítil brugghús, eyddu þeir strandvistinni í að teikna á umslög hvernig unnt væri að koma fyrir brugghúsi frá PBC-framleiðandanum í þessu litla rými. Úr varð að tæki og tól voru pöntuð, David kom við annan mann að setja þau upp og hafist var handa við að brugga í janúar 2011.

Þegar kom að nafngiftinni var valið ekki erfitt enda Skagafjörður rómaður fyrir hestamennsku. Gæðingur var formlega farinn af stað og fyrstu bjórarnir, Gæðingur lager og Gæðingur stout skutu upp stútnum í hillum Vínbúðanna 1. maí sama ár.

Strax og bjórinn var mættur í Ríkið vakti hann athygli fyrir skemmtilega umbúðahönnun. Þar voru á ferðinni miðar teiknaðir af Hugleiki Dagssyni, náfrænda brugghúseigandans fjölhæfa og hefur sú áferð, orðagrín og hestaskop löngum verið aðalútlitsmerki Gæðings. En framleiðsluvörur brugghússins hafa almennt gengið vel í landsmenn og má sérstaklega nefna Blágosa, einn fyrsta íslenska súrbjórinn, en hann vann verðlaun fyrir besta bjórinn á Bjórhátíðinni á Hólum.

Árið 2018 flutti Gæðingur starfsemi sína að mestu í Kópavoginn, þar sem komið var upp nýju brugghúsi ásamt bar og því stækkað töluvert frá umslagshúsinu í Skagafirðinum. Var Gæðingur þar með fyrsta míkróbrugghúsið til að stækka við sig. Í dag fást um 20 bjórar frá Gæðingi í Vínbúðinni að jafnaði og þónokkur fjöldi árstíðabundinna bjóra kemur og fer.

Baukar og bar

En það er þó ekki hægt með góðu móti að sleppa hendinni af Gæðingi án þess að minnast á tvö atriði þar sem Gæðingur braut blað í bjórsögu landsins.

Fyrra atriðið snýr að því að Gæðingur var fyrsta smábrugghúsið á Íslandi sem ekki átti stórt móðurfélag, til að setja bjórana sína í dósir. Glerflöskurnar höfðu ráðið för á markaði en augljóst mátti vera að brugghús, staðsett í Skagafirði, sem vildi láta taka sig alvarlega varð að vera hæft í hestaferðir. Úr varð að Gæðingur fór afar snemma að bjóða upp á hluta framleiðslu sinnar í dósum, en slíkt þykir alvanalegt í dag, enda áldósin um margt mun betri og heppilegri geymslumiðill en glerflaskan fyrir ýmsar gerðir bjórs.

Hitt sem kannski hefur markað dýpstu skrefin á bjórmenninguna, var stofnun Microbars. Í Bruggvarpinu, hlaðvarpsþáttum um bjór og bjórmenningu í febrúar 2021, sagði Árni svo frá að haustið 2011 hefði hann verið að eigin mati kominn á sæmilegt ról með að selja bjór á kútum á veitingastað í miðborg Reykjavíkur. Við eigendaskipti á staðnum hefði Gæðingsbjórum og raunar Kalda líka verið hent út og það hefði gert honum gramt í geði. Í ársbyrjun 2012 hefði hann svo verið staddur á Mótel Venus rétt fyrir utan Borgarnes þar sem hann hrökk upp um miðja nótt með þá hugmynd á vörunum að stofna bara sinn eigin bar.

Hann hringdi strax um morguninn í Jóa félaga sinn og meðbruggara og bað hann að finna rými í miðborg Reykjavíkur.

Niðurstaðan varð sú að lítill salur sem þjónaði hálfpartinn sem morgunverðarherbergi fyrir City Center hótelið í Austurstræti varð fyrir valinu. Þar opnuðu eigendur Gæðings, Microbar sem var sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi, 1. júní 2012.

Yfirlýsta markmiðið var að selja handverksbjóra frá öllum öðrum en stóru brugghúsunum til að jafna metin fyrir bolabrögðin!

Fljótlega fóru reykvískir bjórnirðir að venja komur sínar á barinn.

Og þangað réðst einnig ungur maður, Steinn Stefánsson, sem hafði verið í sveit hjá Árna í mörg sumur við góðan orðstír, ekki bara sem kúasmali, heldur einnig sem besserwisser á bjórsviðinu

Steini átti eftir að koma víða við í bjórsenunni í kjölfarið, enda strax ljóst að þar fór veitingamaður sem gerði ekki síður kröfur til sinna viðskiptavina en sjálfs síns. Microbar átti systurbar og gistiheimili á Sauðárkróki um tíma en nú eru þeir staðirnir tveir, annar ofarlega á Laugavegi og hinn í brugghúsinu í Kópavogi.

Það má þannig segja að Eyjafjallajökulsgosið hafi ekki bara komið okkur rækilega á framfæri við ferðamenn heldur hafi það líka á vissan hátt gefið okkur brugghúsið Gæðing, fært okkur kraftbjóramenningu á bari borgarinnar af alvöru og rutt brautina fyrir dósamenningu í handverksbjórnum ... og auðvitað Steina.

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur
Fréttir 16. janúar 2026

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur

Vegna rekstrarvanda á undanförnum misserum náði Ístex ekki að standa í skilum vi...

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni
Fréttir 16. janúar 2026

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar...

Mata fær langmest af kjötkvóta
Fréttir 16. janúar 2026

Mata fær langmest af kjötkvóta

Búið er að úthluta tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur frá Evrópusambandinu fyrir ...

2025 hlýjast frá upphafi mælinga
Fréttir 16. janúar 2026

2025 hlýjast frá upphafi mælinga

Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga samkvæmt upplýsingum f...

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa
Fréttir 16. janúar 2026

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi nautgripabónda til sex mánaða skilorðsbundi...

Hvað á klukkan að vera?
Fréttir 15. janúar 2026

Hvað á klukkan að vera?

Nú eru í gangi tveir undirskriftalistar á island.is þar sem annars vegar er bari...

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður
Fréttir 15. janúar 2026

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum hafa verið birt á vef Alþingis. Í þ...

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló
Fréttir 15. janúar 2026

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló

Enn er nokkurt rekstrartap af nautaeldi á Íslandi og samkvæmt rekstraryfirliti R...