Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Frá tónleikum Sigur Rósar í Royal Albert Hall í september 2025.
Frá tónleikum Sigur Rósar í Royal Albert Hall í september 2025.
Mynd / Claire Alaxandra
Fréttir 6. maí 2026

Sigur Rós spilar

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

BBC blæs til stórviðburðar til heiðurs sir Davids Attenborough í Royal Albert Hall í London í tilefni af aldarafmælil hans.

Sigur Rós munu spila með BBC Concert Orchestra og flytja lag sitt Hoppípolla sem varð einkennislag Planet Earth I og II sem BBC framleiddi og kom fyrst út árið 2006. 

Hefðu alveg gefið leyfi

Merku ævistarfi Davids Attenborough á sviði heimildamynda- og þáttagerðar verður fagnað þann 8. maí og sjónvarpað í beinni útsendingu á BBC. Planet Earth var fimm ár í vinnslu og var þá dýrasta náttúrulífsþáttasería sem BBC hafði framleitt.

Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu, Ágætis byrjun, árið 1999 og varð í kjölfar þáttanna vel þekkt í Bretlandi. Hoppípolla var notað í kynningarefni um þættina á grundvelli svokallaðs Blanket agreement sem er notað á ríkisfjölmiðlum og felur í sér að í kynningarefni á eigin efni megi nota hvaða tónlist sem er án endurgjalds. „Við hefðum örugglega alveg gefið leyfi fyrir því að nota lagið,“ segir Kjartan Sveinsson, meðlimur í Sigur Rós. „Þarna fékk lagið spilun og komst á lista í Bretlandi og platan í platínusölu. Þetta hjálpaði okkur mikið á Bretlandi, og það smitaði svo út frá sér,“ bætir Kjartan við.

Tónleikar með sinfóníum um allan heim

Á undanförnum þremur árum hefur Sigur Rós ferðast um heiminn í tilefni af útgáfu plötunnar ÁTTA sem kom út árið 2023 og spilað á um 80 tónleikum í Ástralíu, Asíu, Bandaríkjunum, Evrópu og í Eldborg Hörpu í lok síðasta árs. Á hverjum tónleikum er sviðið skipað auk hljómsveitarmeðlima 42 manna sveit, alla jafna sinfóníuhljómsveit frá hverjum stað auk kórs. Í september síðastliðnum fyllti Sigur Rós Royal Albert Hall fjórum sinnum.

„Það er heiður að fá að taka þátt í þessum viðburði, þetta er next to royalty,“ segir Kjartan og hlær. Hoppípolla mun óma í Royal Albert Hall og væntanlega kalla fram gæsahúð áhorfenda í salnum og heima í stofu. „Við sprengdum þetta aðeins meira út fyrir flutninginn miðað við orkestra túrana sem við erum búnir að vera á, það eru tréblásarar, hörpur og drengjakór sem syngur með okkur.“ Með Sigur Rós heldur heldur Rob Ames um tónsprotann.

Tónlistin tengd við náttúruna

Ævistarf Attenboroughs hefur byggt á að rýna í og útskýra lífríkið og fyrirbæri í náttúrunni fyrir áhorfendum. Margir tengja tónlist Sigur Rósar við náttúru og óhjákvæmilega stórbrotna náttúru Íslands. „Þessi tenging er ekki vísvitandi frá okkur komin, en það er of lítið hugsað um náttúruvernd á Íslandi, það er enginn flokkur á þingi til dæmis að hugsa um náttúruna, svo þetta er mikilvægt. Það er magnað að sjá myndirnar sem Attenborough gerði til dæmis um sjóinn þar sem hann fjallar um botnvörpuveiðar við Íslandsstrendur. Það eru svo margir sem halda að það sé löngu búið að banna þær. Það er fullt af rugli í gangi og enginn málsvari. Þetta verður bara gaman,“ segir Kjartan aðspurður um stemninguna fyrir því að spila í stórafmælinu.

Vörustreymi frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela
Fréttir 4. ágúst 2026

Vörustreymi frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela

Ný skýrsla sem unnin var á fjögurra ára tímabili sýnir fram á kerfi sem liggur a...

Landbótaáætlanir uppfærðar
Fréttir 4. ágúst 2026

Landbótaáætlanir uppfærðar

Land og skógur vinnur nú að innleiðingu reglugerðar um sjálfbæra landnýtingu.

Tjaldsvæðið í Breiðavík stækkar átjánfalt
Fréttir 4. ágúst 2026

Tjaldsvæðið í Breiðavík stækkar átjánfalt

Eigendur Hótels Breiðavíkur ætla að gera tímabundna aðstöðu fyrir tjaldgesti á t...

7% lækkun á vörum
Fréttir 4. ágúst 2026

7% lækkun á vörum

Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobús, og hans starfsfólk lækkuðu vöruv...

Erfðagalli í Angus-nautum
Fréttir 4. ágúst 2026

Erfðagalli í Angus-nautum

Erfðagalli fannst í Angusnautgripastofninum sem veldur ófrjósemi í arfhreinum na...

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...